Edda Blumenstein birtir grein í Journal of Retailing
20. mars 2026

Edda Blumenstein birtir grein í Journal of Retailing

Dr. Edda Blumenstein, lektor og fagstjóri BS náms í verslun og þjónustu  við Viðskiptafræðideild , birti á dögunum greinina Making Omnichannel Work: A Dynamic Capabilities Roadmap for Retail Transformation í Journal of Retailing. Tímaritið er eitt það fremsta á sínu sviði á heimsvísu.

Hvers vegna festast sum fyrirtæki en önnur blómstra?

Í rannsókninni er leitað svara við spurningu sem brennur á mörgum stjórnendum í verslun og þjónustu í dag: Af hverju tekst sumum fyrirtækjum að umbreyta rekstri sínum með svokallaðri „Omnichannel“ nálgun , á meðan önnur festast í afmörkuðum verkefnum sem skila ekki raunverulegri, langtíma umbreytingu?

Rannsóknin sýnir að vandinn snýst sjaldnast um tæknina sjálfa. Fyrirtæki fjárfesta víða í stafrænum lausnum, samþættum kerfum og upplifun þvert á sölurásir, en umbreytingin stoppar oft þar.

Niðurstöðurnar sýna hvar flöskuhálsar myndast í Omnichannel umbreytingu og hvernig fyrirtæki geta byggt upp hæfni sem gerir þeim kleift að tryggja stöðuga framþróun.

Edda skrifar greinina ásamt fríðu föruneyti meðhöfunda, þeim Vicky Bamiatzi (sem var jafnframt leiðbeinandinn Eddu í doktorsnáminu), Tomas Hult og Jorge Pena Marin.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast greinina frítt í 50 daga í gegnum þennan hlekk:

https://authors.elsevier.com/c/1mnhF56V5Pa9b

Háskólinn á Bifröst óskar Eddu innilega til hamingju með birtinguna