Dr. Vilhjálmur Egilsson verður ráðgjafi stjórnar og rektors
4. mars 2026

Dr. Vilhjálmur Egilsson verður ráðgjafi stjórnar og rektors

Stjórn Háskólans á Bifröst hefur gengið frá samkomulagi við dr. Vilhjálm Egilsson, fyrrverandi rektor skólans, um að hann taki að sér hlutverk ráðgjafa stjórnar og rektors Háskólans á Bifröst.

Vilhjálmur mun í nýju hlutverki veita stjórn skólans ráðgjöf í þeim verkefnum sem fram undan eru. Megináhersla í starfi hans mun lúta að því að efla samstöðu meðal starfsmanna, vinna að öflugri fjármögnun háskólans og gerð rekstraráætlana, auk þess að koma að uppfærslu og þróun gæðastarfs og almennri stefnumótun skólans.

„Ég fagna því sérstaklega að fá Vilhjálm Egilsson til liðs við okkur á þessum tímapunkti. Milli hans og Háskólans á Bifröst er sterk taug og það er mikils virði fyrir okkur að njóta þekkingar hans og reynslu á þeim tímum sem nú fara í hönd í starfi háskólans,“ segir dr. Ólína Þorvarðardóttir, settur rektor Háskólans á Bifröst, í tilefni af ráðningu Vilhjálms.

Vilhjálmur gegndi starfi rektors Háskólans á Bifröst frá 2013-2020. Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins á árunum 2006-2013. Ráðu­neyt­is­stjóri sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­isins frá 2004-2006. Í fram­kvæmda­stjórn Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðsins (IMF) 2003. Fram­kvæmda­stjóri Versl­un­ar­ráðs Íslands á árunum 1987-2003. Alþing­is­maður fyrir Norð­ur­lands­kjör­dæmi vestra á árunum 1991-2003. Hagfræð­ingur Vinnu­veit­enda­sam­bands Íslands á árunum 1982-1987.

Háskólinn á Bifröst hefur frá árinu 1918 menntað fólk til áhrifa og ábyrgðar í íslensku samfélagi og atvinnulífi. Markmið Háskólans á Bifröst er að efla íslenskt atvinnulíf og samfélag með því að bjóða menntun af góðum gæðum í viðskiptum, lögfræði og félagsvísindum. Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi og allt nám við háskólann er byggt upp sem fjarnám. Sem fjarnámsskóli leitast Háskólinn á Bifröst við að tryggja fólki sem sækist eftir háskólamenntun jafnan aðgang að menntun óháð búsetu eða öðrum ytri aðstæðum.