Dr. Erin Sawyer ráðin fagprófessor við Félagsvísindadeild
Dr. Erin Sawyer hefur verið ráðin í stöðu fagprófessors við Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Erin er lögfræðingur og reynslumikill sérfræðingur á sviði utanríkismála, öryggismála og alþjóðasamskipta.
Erin hefur yfir tuttugu ára reynslu á sviði utanríkismála, diplómatíu og þjóðaröryggis. Nýverið gegndi hún stöðu starfandi sendiherra Bandaríkjanna við bandaríska sendiráðið í Reykjavík þar sem hún stýrði samskiptum ríkjanna á sviði varnarmála, orkumála og efnahagslegra málefna. Á þeim tíma kom hún meðal annars að eflingu samstarfs Íslands og Bandaríkjanna á sviði orku- og loftslagsmála og vann að auknum viðskiptatengslum milli landanna.
Áður starfaði hún sem aðalráðgjafi í utanríkismálum fyrir yfirmann bandaríska flughersins í Evrópu og Afríku. Þar veitti hún ráðgjöf í kringum innrás Rússlands í Úkraínu og um stefnumótandi áhrif aðildar Finnlands og Svíþjóðar að NATO. Þá stýrði hún ýmsum verkefnum á vegum bandaríska utanríkisráðuneytisins sem m.a. miðuðu að eflingu réttarríkis og umbótum á dómskerfum í yfir 30 löndum.
Ferill hennar spannar einnig störf innan öryggiskerfis Bandaríkjanna, störf að mannúðarmálum og alþjóðlegri þróunarsamvinnu, auk diplómatískra starfa í Berlín, París og Vientiane.
Erin er með doktorspróf í lögfræði (J.D.) frá Stanford Law School, meistaragráðu í þjóðaröryggisstefnu frá National War College og BA-gráðu frá Swarthmore College. Sérsvið hennar eru meðal annars málefni Norðurslóða, orkuöryggi, alþjóðastjórnmál og stefnumótun á sviði öryggis- og varnarmála.
„Við bjóðum dr. Erin Sawyer hjartanlega velkomna til starfa. Hún er kona með glæstan feril, umfangsmikla reynslu og þekkingu sem vafalaust mun styrkja háskólann okkar enn frekar í kennslu og rannsóknum á sviði alþjóðasamskipta, stjórnmála og öryggismála. Við bindum vonir við að með ráðningunni eflist tengsl háskólans við alþjóðlegt fræða- og starfsumhverfi enn frekar,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor Bifrastar.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta