Dr. Arnór Bragi Elvarsson varði doktorsritgerð sína
16. mars 2026

Dr. Arnór Bragi Elvarsson varði doktorsritgerð sína

Arnór Bragi Elvarsson, aðjúnkt í viðskiptadeild varði doktorsritgerð sína þann 27. febrúar síðastliðinn, við byggingar-, umhverfis- og landupplýsingaverkfræðideild svissneska Tækniháskólans í Zürich, ETH Zürich. Ritgerðin fjallar um mál er varða skipulagsferla við undirbúning innviðaverkefna. 

Ritgerðin ber titilinn “Responsive Infrastructure Planning: Towards Efficient and Effective Transport Infrastructure Planning through Mapping, Analysis and Scanning tools”.  

Skipulagsferlar við innviðaverkefni

Skipulag innviða og undirbúningur innviðaverkefna tekur töluverðan tíma og er það að þó nokkru leyti vegna þess hvernig skipulagsferillinn, sem innviðastofnanir framfylgja, er uppbyggður. Í stuttu máli fjallar ritgerðin um hvernig megi mæla, greina og bæta þessa ferla hjá svissneskum innviðastofnunum þannig það megi mæta þörfum samfélagsins á áhrifaríkari og skilvirkari máta.

Mikill fengur fyrir Bifröst

Arnór hefur starfað sem rannsakandi við ETH í Sviss frá 2021. hann hóf störf sem aðjúnkt í viðskiptadeild Háskólans á Bifröst í ágúst 2025, þar sem hann sinnir kennslu og rannsóknum á fagsviði verkefnastjórnunar. Hann hefur stundað rannsóknir á sviði skipulags innviða og ákvarðanatöku tengda stórum innviðaverkefnum með áherslu á samgöngukerfi. Hann er með meistaragráðu frá ETH Zürich í rýmisþróun og innviðakerfum og BSc gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands. 

Háskólinn á Bifröst óskar Arnóri Braga hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega áfanga.