10. júní 2015

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst 13. júní

Næstkomandi laugardag hinn 13. júní kl. 14.00 verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls munu 126 nemendur útskrifast úr grunnnámi og meistaranámi ásamt Háskólagátt og símenntun. Rektor skólans Vilhjálmur Egilsson mun útskrifa nemendur ásamt sviðsstjórum. Tónlistaratriði í athöfninni verða í höndum þeirra mæðgina Suzanna Budai og Magnús Daníel Budai Einarsson.

Boðið verður upp á móttöku að athöfn lokinni. 

Fylgist með í beinni útsendingu með því að smella hér

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta