Boð um þátttöku í OpenEU Think and Do Tank
OpenEU Thing and Do Tank (TaDT) augýsir eftir nýjum þátttakendum fyrir starfsárið 2026 - 2027. TaDT er alþjóðlegt samfélag sem stuðlar að stafrænni umbreytingu háskólamenntunar með samstarfi, rannsóknum og nýsköpun.
TaDT er hluti af vinnupakka 5 í OpenEU-verkefninu og leiðir saman sérfræðinga og stofnanir víðs vegar um Evrópu til að ræða, þróa og móta framtíð stafrænnar háskólamenntunar. Frá stofnun hefur samfélagið komið að fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal Delphi-rannsóknum, vinnustofum, hlaðvörpum, sameiginlegum útgáfum og þróun nýsköpunaráætlunar OpenEU.
Á síðu TaDT hjá OpenEU má kynna sér starfsemi TaDT, nálgast útgefið efni og rannsóknargögn, taka þátt í umræðum og fylgjast með fundum, vinnustofum og öðrum viðburðum. TaDT er vettvangur fyrir virkt samstarf og þekkingarmiðlun, ekki aðeins póstlisti eða ráðgjafahópur.
Nú er verið að stækka samfélagið og bjóða nýja þátttakendur velkomna. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt skaltu fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan fyrir 23. október.
OpenEU Think and Do Tank Membership Update and New Registration - 2026
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta