Bifröst á Vísindavöku
21. september 2026

Bifröst á Vísindavöku

Vísindavaka verður haldin laugardaginn26. september. Háskólinn á Bifröst verður þar með bás eins og áður þar sem við kynnum það rannsóknastarf sem á sér stað við skólann. 

Að þessu sinni verður áherslan á samstarf Einars Svanssonar og jólasveina Jóhannesar úr Kötlum og INSITU verkefnis Önnu Hildar Hildibrandsdóttur um hvernig jólasveinarnir úr ljóðum Jóhannesar úr Kötlum hafa áhrif á staðarímynd og menningartengda ferðaþjónustu í Dalabyggð. Íslensku jólasveinarnir verða þar í aðalhlutverki og eins og við þekkjum, þá eru gestir Vísindavöku mikið til fjölskyldur og börn svo því er hugmyndin að börnum verði m.a. boðið að teikna uppáhalds jólasveininn sinn, merkja við á landakorti hvar þeir bræður eiga heima og fleira skemmtilegt tengt þessum þjóðararfi okkar sem íslensku jólasveinarnir eru.