Bifrestingur á vaktinni fyrir Landssamtök stúdenta
16. september 2025

Bifrestingur á vaktinni fyrir Landssamtök stúdenta

Bifrestingurinn Júlíus Andri Þórðarson hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Landssamtaka íslenskra stúdenta, LÍS.  

„Það er heiður að fá að starfa með LÍS á tímum þar sem raddir stúdenta skipta sköpum,“ segir Júlíus Andri við tilefnið. „Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til að styrkja hagsmunabaráttu stúdenta og efla sýnileika hennar, sem of oft hefur fengið takmarkaða athygli.“ 

Júlíus Andri er útskrifaður með BA-gráðu í miðlun og almannatengslum frá Háskólanum á Bifröst. Á námstímanum tók hann virkan þátt í félagslífi háskólans, meðal annars sem varaforseti og hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst, auk þess að sitja í háskólaráði og jafnréttisnefnd skólans. 

Júlíus hefur á undanförnum árum aflað sér víðtækrar reynslu af hagsmunabaráttu, stefnumótun og félagsstörfum og býr einnig að reynslu af stjórnmálastarfi, kosningabaráttum og almannatengslum. 

LÍS eru regnhlífarsamtök háskólanema á Íslandi og standa vörð um hagsmuni stúdenta hérlendis og þeirra sem stunda nám erlendis. Samtökin eru í forsvari fyrir rúmlega 22.000 háskólanema gegnum átta aðildarfélög. 

Háskólinn á Bifröst óskar Júlíusi Andra Þórðarsyni innilega til hamingju með nýtt starf sem framkvæmdastjóri Landssamtaka íslenskra stúdenta. Þá óskum við LÍS til hamingju með liðsaukann.