Bifrestingar með allt IORDEN
7. apríl 2026

Bifrestingar með allt IORDEN

Nýsköpunarfyrirtækið IORDEN hefur hlotið styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna (Rannís) fyrir sumarið 2026. Teymið, sem sigraði í hugmyndaáskorun Gulleggsins fyrr á árinu, fær styrk fyrir þrjá nemendur í samtals níu mánuði til þróunar á IORDEN. Þau Sunna Guðlaugsdóttir og Margeir Haraldsson, nemendur við Háskólann á Bifröst, eru frumkvöðlarnir á bakvið IORDEN. Við settumst niður með þeim og fengum að heyra meira um vegferð IORDEN.

Það er óhætt að segja að vegferð IORDEN sé hröð. Hópurinn sigraði áskorun JBT Marel í Gullegginu síðastliðinn janúar, hrepptu annað sæti í Gullegginu sjálfu, tryggðu sér pláss í Hringiðunni; viðskiptahraðli Klak fyrir sprotafyrirtæki með grænar lausnir og nú þrjár milljónir í styrk frá Rannís.

Áhugasamir geta fylgst með vegferð IORDEN með því að skrá sig á póstlista fyrirtækisins.

Hvernig kom til að þið ákváðuð að taka þátt í Gullegginu?

„Við höfum bæði alltaf haft mikinn áhuga á nýsköpun,“ segir Sunna. „Margeir var nýlega farinn að starfa alveg sjálfstætt og sá Hugmyndahraðhlaupið sem kjörið tækifæri. Sjálf skráði ég mig mest af því mér fannst þetta hljóma skemmtilega og sem góð tilbreyting frá mastersritgerðinni, en ég vissi ekki alveg við hverju ég ætti að búast. Svo fórum við og unnum, fengum sæti í lokakeppninni og þá fannst mér það liggja beint við að halda áfram með þessa hugmynd.“

IORDEN eykur skilvirkni smærri matvælaframleiðenda

Verkefnið sem nú hefur hlotið styrk frá Rannís miðar að þróun á einfaldri SCADA-hugbúnaðarlausn sem samhæfir ólíkar vélar í matvælaframleiðslu í eitt kerfi. Lausnin er sérstaklega ætluð litlum og meðalstórum matvælaframleiðendum sem hvorki hafa þörf fyrir né aðgang að umfangsmiklum og kostnaðarsömum sjálfvirkum lausnum í sinni framleiðslu. Hugbúnaður IORDEN sjálfvirknivæðir skýrslugerð fyrir eftirlitsaðila, safnar rauntímagögnum og útbýr úttektarhæfar skýrslur með einum smelli, sniðnar að íslensku regluverki og þörfum hvers fyrirtækis. Lausnin auðveldar þannig aðgengi að vottunum, en býður einnig upp á greiningavinnu til að auka skilvirkni, framleiðni og bera kennsl á mynstur. Hugbúnaðurinn kemur einnig neytendum til góðs en hann veitir aukna innsýn, auðveldar rakningu matvæla og eykur þannig gagnsæi. Einnig auðveldar hann líf einyrkja í sjálfstæðum rekstri þar sem kerfið getur vaktað og látið vita við frávik í framleiðsluferli.

Hvaðan kemur hugmyndin ykkar að IORDEN?

Hugmyndin fæddist í lausnamóti þar sem JBT Marel setti fram áskorun. „Við fórum í hugarflug út frá því í hópum,“ útskýrir Sunna. „Þá kom upp þessi hugmynd að tengja saman ólíkar vélar og auðvelda þannig smærri matvælaframleiðendum lífið, þar sem þeir hafa oft hvorki efni né þörf á stórum, dýrum og samþættum framleiðslulínum.“

Markmið IORDEN er göfugt: „Okkur finnst ótrúlega spennandi að stuðla að aukinni samkeppnishæfni minni framleiðenda og minnka það forskot sem stærri fyrirtæki hafa á markaði. Það skilar sér vonandi á endanum í auknum gæðum og meiri fjölbreytileika matvæla sem neytendur græða á.“

Þekktust þið áður en þið ákváðuð að starfa saman?

„Nei, við þekktumst ekki neitt,“ segir Sunna og brosir. „Við pöruðum okkur saman í hópa út frá áskorununum í hraðhlaupinu og unnum út frá því. Við vorum þrjú í upphafi en erum tvö núna að þróa þetta áfram. Það er búið að vera mjög gaman að komast að því í ferlinu að við vinnum á mjög svipaðan hátt, enda höfum við svipaðan bakgrunn,“ segir Sunna.

„Það hefur hjálpað okkur gríðarlega að taka þátt í Gullegginu; það hefur veitt okkur aðhald, ýtt okkur áfram og þvingað okkur til að vinna hratt.“

Hvað þýðir þessi árangur fyrir ykkur og hvernig nýtist hann í framhaldinu?

Árangurinn hefur opnað margar dyr fyrir teymið. „Þetta er mikil viðurkenning á hugmyndinni og okkar vinnu, en svo fengum við líka peningaverðlaun sem við getum notað til að stofna fyrirtæki og koma okkur af stað,“ segja þau.

Lífið eftir Gulleggið er þegar farið að rúlla á miklum hraða. „Gulleggið veitti okkur mikið aðhald og þvingaði okkur til að vinna hratt. Við erum búin að víkka tengslanetið okkar töluvert, kynnast öflugu fólki í nýsköpunarheiminum og sérfræðingum í þeim geira sem við erum að þróa lausn fyrir. Athyglin og umfjöllunin sem fylgir þessu hjálpar okkur líka mikið,“ segir Sunna að lokum.

IORDEN í Hringiðunni

„ Við vorum að fá þær gleðifréttir að við komumst inn í viðskiptahraðalinn Hringiðu á vegum KLAK, en það er 6 vikna viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir. Það hefur hjálpað okkur gríðarlega að taka þátt í Gullegginu, en það hefur veitt okkur aðhald, ýtt okkur áfram og þvingað okkur til að vinna frekar hratt. Við erum búin að víkka tengslanetið okkar töluvert, búin að kynnast fullt af öflugu og skemmtilegu fólki í nýsköpunarheiminum sem og sérfræðinga innan þeirra geira sem við erum að þróa lausn fyrir. Við höfum einnig fengið athygli og umfjöllun sem hjálpar okkur,“  segir Sunna að lokum.