Bifrestingar keppa til úrslita í Gullegginu
Í dag fer fram lokakeppni Gulleggsins í Grósku þar sem teymið IORDEN, skipað þeim Sunnu Guðlaugsdóttur úr menningarstjórnun, Margeiri Haraldssyni úr skapandi greinum frá Háskólanum á Bifröst og Hauki Hólm Gunnarssyni nemanda í hátækniverkfræði við HR.
Teymið tryggði sér sæti í úrslitum með sigri í Hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og er nú meðal 10 nýsköpunarteyma sem keppa um titilinn í ár.
Keppnin fer fram í Hátíðarsal Grósku kl. 15:30–18:00 og verður í beinu streymi á Vísi.
Einnig stendur yfir vinsældakosning og geta áhugasamir stutt við bakið á teyminu með því að kjósa hér
Nánari upplýsingar um viðburðinn er að finna hér
Gulleggið er stærsta og elsta frumkvöðlakeppni landsins á hugmyndastigi og er haldin árlega af KLAK - Icelandic startups. Keppnin hefur verið stökkpallur fyrir mörg af þekktustu sprotafyrirtækjum landsins í gegnum árin. Háskólinn á Bifröst er stoltur bakhjarl Gulleggsins.
Við óskum teyminu góðs gengis í dag!
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta