Margeir og Sunna á lokadegi Hringiðu, viðskiptahraðals sem KLAK – Icelandic Startups stendur fyrir.

Margeir og Sunna á lokadegi Hringiðu, viðskiptahraðals sem KLAK – Icelandic Startups stendur fyrir.

18. júní 2026

Bifrestingar hljóta 9 milljóna nýsköpunarstyrk frá Lóu fyrir IORDEN

Nýsköpunarfyrirtækið IORDEN, sem Margeir Haraldsson Arndal, nemandi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst, stofnaði ásamt Sunnu Guðlaugsdóttur, sem útskrifaðist með MA-gráðu í menningarstjórnun í júní frá Háskólanum á Bifröst, hefur hlotið 9 milljóna króna styrk úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina fyrir árið 2026. Fyrirtækið er staðsett á Flateyri og er styrkurinn einn af hæstu styrkjum sem sjóðurinn veitti í ár.

Styrkurinn er veittur til áframhaldandi þróunar á IORDEN, hagkvæmri vél- og hugbúnaðarlausn sem sjálfvirknivæðir gæðaskráningu og einfaldar rekjanleika matvæla fyrir smærri matvælaframleiðendur. Lausnin gerir framleiðendum kleift að uppfylla síbreytilegar og strangar kröfur um gæðaeftirlit og skráningar með einfaldari og skilvirkari hætti.

IORDEN hefur verið á mikilli siglingu frá því hugmyndin varð til í Hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans í janúar. Þar kynntust Margeir og Sunna og hófu samstarf sem hefur á skömmum tíma skilað eftirtektarverðum árangri. Teymið sigraði áskorun JBT Marel í Gullegginu, hlaut annað sæti í lokakeppni Gulleggsins 2026 og fékk í sumar styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til frekari þróunar. Þá fá þau jafnframt tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegum nýsköpunarviðburði í Lettlandi, þar sem þau kynna verkefnið, efla tengslanet sitt og sækja sér frekari reynslu á alþjóðavettvangi.

Lausn IORDEN er sérstaklega hugsuð fyrir litla og meðalstóra matvælaframleiðendur, svo sem einyrkja, bændur og minni fyrirtæki í matvælaframleiðslu, sem þurfa að halda utan um gæðamál, skráningar og eftirlit en hafa ekki endilega aðgang að umfangsmiklum og kostnaðarsömum sjálfvirknilausnum. Markmiðið er að spara framleiðendum tíma, auka gagnsæi og gera þeim kleift að einbeita sér betur að því sem skiptir mestu máli – að framleiða góðan mat.

Styrkurinn úr Lóu er enn ein mikilvæg viðurkenning á þeirri vinnu sem teymið hefur lagt í þróun IORDEN og styrkir stöðu verkefnisins sem spennandi nýsköpunarlausnar fyrir íslenska matvælaframleiðslu.

Margeir hyggst ljúka BA-námi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst í haust. Hann hefur meðal annars þakkað IORDEN árangurinn, valáföngum sem hann tók í frumkvöðlastarfi við skólann og þeirri leiðsögn sem hann fékk frá kennara sínum Fidu Abu Libdeh. Árangur IORDEN sýnir með skýrum hætti hvernig fræði og framkvæmd geta fléttast saman í náminu við Háskólann á Bifröst.

Háskólinn á Bifröst óskar Margeiri og Sunnu innilega til hamingju með þennan góða árangur.