Sunna Guðlaugsdóttir og Margeir Haraldsson Arndal, Bifrastarnemar og frumkvöðlar, ætla sér stóra hluti með nýsköpunarlausn sína IORDEN. Mynd: Vísir/Vilhelm

Sunna Guðlaugsdóttir og Margeir Haraldsson Arndal, Bifrastarnemar og frumkvöðlar, ætla sér stóra hluti með nýsköpunarlausn sína IORDEN. Mynd: Vísir/Vilhelm

5. júní 2026

Bifrastarnemar sem kynntust í Hugmyndahraðhlaupi

Vísir greinir frá undraverðum árangri Bifrastarnemanna Sunnu Guðlaugsdóttur og Margeirs Haraldssonar Arndal, sem kynntust fyrst í janúar á Hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans. Aðeins nokkrum mánuðum síðar hafa þau stofnað nýsköpunarfyrirtækið IORDEN, sem hlaut annað sæti í lokakeppni Gulleggsins 2026.

Sunna útskrifast með MA-gráðu í menningarstjórnun nú í sumar og Margeir hyggst ljúka BA-námi í skapandi greinum í haust. Saman vinna þau að lausn sem á að einfalda skráningar, gæðamál og aðra skriffinnsku fyrir smærri matvælaframleiðendur, svo sem einyrkja, bændur og lítil fyrirtæki í matvælaframleiðslu.

Markmið IORDEN er að gefa framleiðendum meiri tíma til að sinna því sem skiptir mestu máli – að framleiða góðan mat. Þau hafa þegar tekið þátt í Hringiðu, viðskiptahraðli KLAKS fyrir grænar lausnir, og eru á leið til Riga í Lettlandi í sumar þar sem þau taka þátt í GEN-E frumkvöðlakeppninni.