Bergsveinn Þórsson flutti erindi um loftslagsmál og rannsóknir
11. mars 2026

Bergsveinn Þórsson flutti erindi um loftslagsmál og rannsóknir

Föstudaginn 6. mars hrinti Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands af stað viðburðaröð um loftslagsmál og rannsóknir í Veröld - húsi Vigdísar. Á meðal fræðimanna sem fluttu erindi á þessu fyrsta málþingi í fundaröðinni var dr. Bergsveinn Þórsson, fagstjóri opinberrar stjórnsýslu og staðgengill deildarforseta félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst. Erindi Bergsveins bar heitið „Ímyndunarafl gegn loftslagsvá? Um framsýni, samfélagsleg gildi og sjálfsmyndir“ og fjallaði um virkjun ímyndunaraflsins í tengslum við loftslagsbreytingar.

Aðrir fyrirlesarar voru Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ, Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor við jarðvísindadeild HÍ, Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands og Bryndís Marteinsdóttir, sviðstjóri sviðs rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi. Að fyrirlestrum loknum var boðið upp á pallborð þar sem fræðimennirnir fimm skiptust á skoðunum og svöruðu fyrirspurnum úr sal.

Í upphafi viðburðarins flutti Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarp. Sagði hann þar frá nýjum samningi við Sjálfbærnistofnun HÍ um að styðja við uppbyggingu þverfaglegs samstarfsvettvangs á sviði loftslagsrannsókna – loftslagsseturs. Bindur ráðherra vonir við að sá stuðningur muni skapa tækifæri fyrir íslenskt vísindafólk þvert á greinar og háskóla, þvert á fyrirtæki og stofnanir, að koma saman, ræða og miðla stöðu þekkingar vegna loftslagsbreytinga.

Háskólinn á Bifröst fagnar því að þverfaglegur vettvangur á sviði loftslagsrannsókna sé í sjónmáli og vonast til að geta lagt sitt lóð á vogarskálina.