AÞ-Þrif tilnefnt til menntaverðlauna atvinnulífsins
11. febrúar 2026

AÞ-Þrif tilnefnt til menntaverðlauna atvinnulífsins

AÞ-Þrif er meðal þriggja fyrirtækja tilnefnt til Menntaverðlauna atvinnulífsins sem Menntafyrirtæki ársins. Endurmenntun Háskólans á Bifröst og AÞ-Þrif eiga í miklu og góðu samstarfi um framkvæmd fræðslu- og menntastefnu fyrirtækisins. Háskólinn á Bifröst óskar AÞ-Þrif til hamingju með þá miklu viðurkenningu sem felst í tilnefningunni. Þrjú fyrirtæki fengu tilnefningu í ár en þau eru auk AÞ-Þrifa, BM Vallá og Krónan. Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt í dag og titilinn Menntafyrirtæki ársins hlaut BM Vallá.

Samstarf AÞ-Þrifa og Háskólans á Bifröst er liður í fræðslu- og menntastefnu fyrirtækisins. Hjá AÞ-Þrifum er starfsfólk hvatt til virkrar menntunar og fræðslu, bæði innan og utan vinnutíma. Starfsfólki býðst meðal annars íslenskunám, sérhæfð námskeið auk sérsniðins stjórnendanámi frá Háskólanum á Bifröst.

Endurmenntun Háskólans á Bifröst býður upp á sérsniðnar fræðslulausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja efla hæfni, færni og faglega þróun starfsfólks. Lausnir okkar byggja á sterkum akademískum grunni og nánu samstarfi við atvinnulífið. 

Við þróum námskeið, fyrirtækjaskóla og fræðsluverkefni í takt við þarfir fyrirtækja, markmið skipulagsheilda og síbreytilegar kröfur vinnumarkaðarins. Með þessu tryggjum við að fræðslan skili raunverulegum og mælanlegum árangri. 

Háskólinn á Bifröst óskar AÞ-Þrifum og Endurmenntun háskólans innilega til hamingju með þann árangur sem náðst hefur og tilnefningin staðfestir.