Árni Magnússon nýr stjórnarformaður Háskólans á Bifröst
Árni Magnússon, forstjóri ISOR og fyrrverandi félagsmálaráðherra, hefur verið kjörinn formaður stjórnar Háskólans á Bifröst á fundi stjórnar 19. maí. Árni hefur lokið MIB námi í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst og lauk prófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst 1983.
„Það er mér mikill heiður og sönn ánægja að taka að mér formennsku í stjórn Háskólans á Bifröst og ég fagna því trausti sem mér er sýnt,“ segir Árni í tilefni að kjörinu. „Bifröst á sérstakan stað í hjarta mínu, enda á ég þaðan dýrmætar minningar og sterkar taugar til skólans allt frá námsárum mínum þar. Fram undan eru spennandi verkefni í ört breytilegu háskólaumhverfi og ég hlakka mikið til að vinna með stjórn, starfsfólki og nemendum að áframhaldandi uppbyggingu og framgangi skólans“.
Árni hefur víðtæka reynslu úr bæði opinbera geiranum og atvinnulífinu. Hann gegndi embætti félagsmálaráðherra árin 2003–2006 og starfaði auk þess um árabil sem aðstoðarmaður ráðherra í iðnaðar-, viðskipta- og utanríkisráðuneytinu.
Á undanförnum árum hefur Árni stýrt Íslenskum orkurannsóknum (ÍSOR), auk þess að hafa gegnt stjórnunarstörfum hjá Mannviti og Íslandsbanka á sviði alþjóðamarkaða og endurnýjanlegrar orku. Þá hefur hann setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og stofnana, og var um árabil í stjórn Orkuklasans, þar af 4 ár stjórnarformaður, og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.
Ný stjórn Háskólans á Bifröst hefur tekið til starfa. Stjórn Háskólans á Bifröst er skipuð fimm einstaklingum tilnefndum til tveggja ára í senn. Nýja stjórn skipa auk Árna þau Eyjólfur Árni Rafnsson, varaformaður, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins; Guðveig Lind Eyglóardóttir, fulltrúi Borgarbyggðar; Unnar Steinn Bjarndal, fulltrúi Háskólaráðs og Margrét K. Guðnadóttir, fulltrúi SÍS.
„Við erum að fá öflugt fólk til liðs við okkur inn í stjórn háskólans, sem er fagnaðar efni,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst um nýja stjórn. „Nýr stjórnarformaður býr að þekkingu og reynslu sem er okkur sérlega verðmæt og samanlögð þekking og reynsla þessa góða fólks sem skipar endurnýjaða stjórn skólans mun vafalaust nýtast vel í þeim verkefnum sem framundan eru. Ég hlakka til samstarfsins við þetta góða fólk og vænti mikils.“
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta