Arndís Anna ráðin lektor við Lagadeild
Arndís Anna K. Gunnarsdóttir hefur verið ráðin lektor við lagadeild Háskólans á Bifröst. Arndís hefur áralanga reynslu af kennslu og rannsóknum á sviði lögfræði, einkum í tengslum við mannréttindi, fólksflutninga og ýmis samskipti borgara og ríkisvalds á Íslandi, í Belgíu og í Frakklandi. Arndís hefur víðtæka starfsreynslu úr stjórnsýslu, lögmennsku og akademíu. Hún hefur starfað sem lögfræðingur hjá Rauða krossinum á Íslandi, hjá ráðuneytum og stofnunum og sem sjálfstætt starfandi lögmaður. Auk þess sat hún á Alþingi á árunum 2021–2024.
Arndís lauk meistaranámi í lögfræði frá HÍ, síðar lauk hún LL.M gráðu í mannréttindum og þjóðarétti frá KU Leuven í Belgíu og stundaði doktorsnám í mannréttindum við háskólann í Strassborg í Frakklandi á árunum 2017–2020.
Í frítíma sínum smíðar hún veggi og flotar gólf, reynir að bjarga heiminum í gegnum ýmiskonar félagsstörf og syngur í kór Hallgrímskirkju. Og ef einhverstaðar er boðið upp á karókí eru allar líkur á að hún sé þar.
Við bjóðum Arndísi velkomna til starfa við Háskólann á Bifröst.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta