Arna Kristín Einarsdóttir í viðtali í leiðandi alþjóðlegu fræðitímariti
12. júní 2026

Arna Kristín Einarsdóttir í viðtali í leiðandi alþjóðlegu fræðitímariti

Í vikunni birtist viðtal við Örnu Kristínu Einarsdóttur, skrifstofustjóra menningar- og skapandi greina í menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðuneytinu, í alþjóðlega fræðitímaritinu Cultural Trends, sem telst meðal leiðandi rannsóknartímarita á sviði menningarstefnu og menningarstjórnunar. 

Viðtalið, sem ber heitið Cultural Sustainability and Cultural Leadership, var tekið af Nirði Sigurjónssyni, prófessor og fagstjóra meistaranáms í menningarmiðlun við Háskólann á Bifröst. Það er hluti af viðtalsröð tímaritsins þar sem rætt er við áhrifafólk á sviði menningarstefnu og menningarforystu um þróun greinarinnar og helstu áskoranir samtímans.

Í viðtalinu fjallar Arna Kristín meðal annars um tengsl menningar og sjálfbærni, hlutverk menningarstofnana í samfélaginu, aðgengi að menningu og hvernig menningarforysta getur stuðlað að langtímahugsun og samfélagslegum áhrifum. Einnig ræðir hún reynslu sína af stjórnun og stefnumótun innan menningarstofnana á alþjóðavettvangi og hlutverk hins opinbera í mótun menningarstefnu.

Arna Kristín lauk meistaraprófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og hefur jafnframt komið að kennslu í náminu um árabil. Hún hefur gegnt fjölmörgum leiðtogastörfum á sviði menningarmála, meðal annars sem framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, framkvæmdastjóri National Arts Centre Orchestra í Ottawa í Kanada og dagskrár- og skipulagsstjóri Gautaborgarsinfóníunnar í Svíþjóð.

Birting viðtalsins í Cultural Trends undirstrikar sterka tengingu Háskólans á Bifröst við alþjóðlegt fræðasamfélag á sviði menningarstjórnunar og menningarmiðlunar. Jafnframt er það sérstakt ánægjuefni fyrir háskólann að sjá framlag fyrrum nemenda og kennara skólans birtast á þessum alþjóðlega vettvangi og taka þátt í samtali um framtíð menningarstefnu og menningarstjórnunar.

Viðtalið er aðgengileg á vef tímaritsins Cultural Trends.

Cultural Trends er alþjóðlegt ritrýnt fræðitímarit sem fjallar um menningargeirann, listir, skapandi greinar og menningarstefnu. Tímaritið birtir rannsóknir sem varpa ljósi á þróun í menningarlífi og áhrif stefnumótunar á listir, menningarstofnanir og skapandi atvinnugreinar.