Alþjóðavika 2026 hafin
Alþjóðavika Háskólans á Bifröst hófst í gær, 11. maí og stendur fram til lok dags þann 13. maí. Þátttakendur eru alls 23 akademískir starfsmenn og stjórnendur frá 8 háskólum innan OpenEU bandalagsins. Viðburður sem þessi veitir starfsfólki háskóla innan OpenEU tækifæri til að eiga samtal og miðla þekkingu um bestu starfsvenjur í fjarnámi.
Dagskrá Alþjóðaviku er fjölbreytt og verður nóg um að vera fyrir þátttakendur vikunnar. Á dagskrá þá þrjá daga sem Alþjóðavika stendur munu gestir taka þátt í fjölbreyttum vinnustofum, þar sem meðal annars verður fjallað um eftirlit með hjálp gervigreindar, persónulegan stuðning við nemendur í stafrænu umhverfi og hönnunarhugsun fyrir samvinnu. Þá verður farið í skipulagða gönguferð um borgina og fleira skemmtilegt. Vikan endar svo með ferð í Borgarfjörðinn í heimsókn á starfsstöð Bifrastar á Hvanneyri og náttúruperlur Borgarfjarðar
Háskólinn á Bifröst er þátttakandi í OpenEU er háskólasamstarfinu, sem samanstendur af evrópskum fræðastofnunum og öðrum tengdum samtökum og er stutt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Markmið samstarfsins er að skapa sam-evrópskan opinn háskóla sem nýtir stafrænt nám samfélögum til heilla. Sérstök áhersla er lögð á að auka þátttöku minnihlutahópa og þeirra sem búa við skert tækifæri til háskólanáms.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta