Ágúst Einarsson hlýtur heiðursdoktorsnafnbót
Dr. rer. pol. Ágúst Einarsson, prófessor emeritus og fyrrum rektor Háskólans á Bifröst, hefur hlotið heiðursdoktorsnafnbót Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi framlag sitt til viðskiptafræða, rannsókna og samfélagsumræðu á Íslandi.
Ágúst lauk doktorsprófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Hamborg. Hann átti langan og farsælan ferli sem prófessor við Háskóla Íslands, áður en hann varð prófessor og rektor við Háskólann á Bifröst. Rannsóknir hans og kennsla hafa einkum beinst að rekstrarhagfræði, menningarhagfræði, sjávarútvegsfræðum og skapandi greinum. Hann hefur meðal annars rannsakað skipulag smásöluverslunar og hagræn áhrif menningar í alþjóðlegu samhengi.
Ágúst hefur ritað yfir 30 bækur á íslensku og ensku með sérstaka áherslu á fræðamál á sviði viðskiptafræða, auk verka er snúa að menningu og listum. Hann hefur jafnframt gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í íslensku samfélagi, stjórnmálum og atvinnulífi.
Eins og kemur fram á vef Háskóla Íslands hefur Ágúst Einarsson með ritstörfum sínum og virku framlagi til samfélagsins haft varanleg áhrif á þróun viðskiptafræða og tengsl háskólasamfélagsins við atvinnulíf og íslenskt samfélag.
Háskólinn á Bifröst óskar Ágústi innilega til hamingju með heiðursnafnbótina.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta