Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina, við endurnýjun samningsins.
7. júní 2026Áframhaldandi uppbygging rannsóknaseturs skapandi greina tryggð
Rannsóknasetur skapandi greina og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hafa endurnýjað samning um áframhaldandi uppbyggingu og starfsemi Rannsóknaseturs skapandi greina til næstu þriggja ára.
Háskólinn á Bifröst annast umsýslu Rannsóknaseturs skapandi greina, en að því standa einnig Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Listaháskóli Íslands.
Samningurinn var endurnýjaður á stjórnarfundi Rannsóknasetursins á föstudag, sem fór fram í Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð. Stjórn skipa fulltrúar allra eigenda RSSG, auk fulltrúa Samtaka skapandi greina, fulltrúa menningarráðuneytisins og ráðherraskipaðs formanns.
Markmið samningsins er að halda áfram að efla rannsóknir og byggja upp þekkingu á atvinnulífi menningar og skapandi greina, með áherslu á aukið samstarf, gagnaöflun, greiningar, samfélagsleg áhrif og miðlun til almennings, stjórnvalda og hagaðila. Sérstök áhersla verður einnig lögð á þróun mælaborðs skapandi greina.
Á fundinum gerði Erla Rún, forstöðukona setursins, jafnframt grein fyrir blómlegri starfssemi þess og greindi frá þeim fjölmörgu verkefnum sem eru á döfinni.
Háskólinn á Bifröst annast umsýslu Rannsóknaseturs skapandi greina, en að því standa einnig Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Listaháskóli Íslands.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta