Núverandi og fráfarandi stjórn

Núverandi og fráfarandi stjórn

3. júní 2025

Aðalfundur NFHB – Ný stjórn tekin við

Aðalfundur Nemendafélags Háskólans á Bifröst fór fram þann 28. maí síðastliðinn í Paradísarlaut, á skrifstofu háskólans í Borgartúni 18. Á fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf og hefur ný stjórn nú tekið við.

Nýjar stjórnir NFHB og undirfélaga skólaárið 2025–2026 er eftirfarandi:

Forseti: Halldóra Hreinsdóttir

Varaforseti: Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson

Fjármálastjóri: Margeir Haraldsson Arndal

Viðburða- og samskiptastjóri: Steinunn María Einarsdóttir

Hagsmunafulltrúi: Selma Klara Gunnarsdóttir

Justitia félag lagadeildar:

Formaður: Kristján Óli Níels Sigmundsson

Varaformaður: Guðrún Ósk Lange

Merkúr félag viðskiptadeildar:

Varaformaður: Ása Laufey Sigurðardóttir

Venus félag félagsvísindadeildar:

Formaður: Oddrún Arna Einarsdóttir

Ný stjórn er spennt fyrir komandi verkefnum og hlakkar til að hefja undirbúning næsta starfsárs. Hún sendir jafnframt fráfarandi stjórn kærar þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag. Sterkt félagslíf og virk hagsmunabarátta eru lykilforsendur fyrir öflugt háskólasamfélag, og það ætlar ný stjórn að standa vörð um.