Aðalfundur Hollvinasamtaka Bifrastar
Aðalfundur Hollvinasamtaka Bifrastar verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl 2026, kl. 17:00 í húsnæði Háskólans á Bifröst í Borgartúni 18, 3. hæð.
Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf.
Stjórn samtakanna skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara. Rektor skipar einn aðalmann en aðalfundur kýs í hvert sinn til tveggja ára einn stjórnarmann og annan til vara. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
Markmið Hollvinasamtaka Bifrastar er að efla og viðhalda tengslum milli allra yngri og eldri nemenda Háskólans á Bifröst og annarra sem bera hag skólans fyrir brjósti. Hollvinasamtökin skulu styðja við uppbyggingu og efla skólastarf á Bifröst ásamt því að greiða aðgang félagsmanna að starfsemi og þjónustu skólans.
Dagskrá fundar:
Samkvæmt 7. gr. laga Hollvinasamtaka Bifrastar er dagskrá aðalfundar:
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
- Inntaka nýrra félaga.
- Skýrsla stjórnar HSB.
- Skýrsla fulltrúa HSB í stjórn Háskólans á Bifröst.
- Reikningar HSB lagðir fram til samþykktar.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar, skoðunarmanna reikninga og nefnda.
- Kosning fulltrúa í stjórn Háskólans á Bifröst 8. Önnur mál.
Óskað er eftir að eftirfarandi liðir verði teknir á dagskrá fundarins:
1. Tillaga um lagabreytingu
a. Núgildandi 12. gr.:
Á aðalfundi annað hvert ár skal kjósa 1 aðalfulltrúa í stjórn Háskólans á Bifröst og einn til vara til tveggja ára, í fyrsta sinn á aðalfundi 2006. Stjórn samtakanna skal leggja fram tilnefningar þessara fulltrúa á fundinum og síðan skal aðalfundarfulltrúum gefinn kostur á að bæta við tilnefningum. Kosningin skal bundin við fram komnar tilnefningar.
b. Tillaga að breytingu á 12. gr.:
Á aðalfundi hvert ár skal kjósa 1 aðalfulltrúa í stjórn Háskólans á Bifröst og einn til vara til eins árs. Stjórn samtakanna skal leggja fram tilnefningar þessara fulltrúa á fundinum og síðan skal aðalfundarfulltrúum gefinn kostur á að bæta við tilnefningum. Kosningin skal bundin við fram komnar tilnefningar.
2. Tillaga að nýjum aðal- og varafulltrúa í stjórn Háskólans á Bifröst
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta