Halda námskeið til að efla fátækar konur í Tansaníu 11. apríl 2015

Halda námskeið til að efla fátækar konur í Tansaníu

Þrír kennarar frá háskólanum á Bifröst lögðu í morgun af stað til Tansaníu, þar sem þau ætla næstu vikur að halda námskeið til að efla fátækar konur til sjálfshjálpar. 

Námskeiðið kallast Máttur kvenna og hefur verið haldið á Bifröst síðastliðin 10 ár. Það hefur verið aðlagað aðstæðum í Afríku og gengur út á að þjálfa konurnar til að koma auga á viðskiptatækifæri í nærumhverfi sínu og búa þær færni til að koma þeim í framkvæmd.

Rannsóknir sýna ótvírætt að besta leiðin til að draga úr vannæringu barna er að mennta mæður þeirra. Fjölskyldan öll nýtur góðs af atvinnusköpun kvenna, bætir hag heimilsins, veitir aðgang að heilbrigðisþjónustu og umfram allt stuðlar að menntun barna sem er lykillinn að árangri til framtíðar.

Háskólinn á Bifröst þakkar styrktaraðilum kærlega fyrir stuðninginn. Meðal þeirra eru Íslandsbanki, Tanzanice Farm, Bernhard Laxdal og Icelandic Group. Fleiri bætast í hópinn á næstunni.


Myndin var tekin við upphaf ferðarinnar í morgun, frá vinstri Magnús Árni Skjöld Magnússon dósent, Eríkur Bergmann prófessor og Anna Elísabet Ólafsdóttir aðstoðarrektor á Bifröst.

Sérstaklega er bent á að fylgjast má með verkefninu á Facebook
 

 

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta