22. október 2026
Málþing Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum
Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum stendur fyrir málþingi á netinu fimmtudaginn 22. október þar sem sjónum verður beint að nýlegum rannsóknum setursins og málefnum byggða og sveitarstjórna.
Sérfræðingar hjá Rannsóknarsetri í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst kynna fjórar rannsóknir sem setrið hefur unnið að síðastliðið ár. Þar á eftir verða umræður og síðan smá fjölmiðlaspegill, þar sem við fáum sjónarhorn nokkurra héraðsfrétta blaðamanna. Gréta Bergrún og Vífill stýra málstofunni en umræðustjórn verður í höndum Hugrúnar Hörpu Reynisdóttur, frá Nýheimum Þekkingarsetri.
Dagskrá
13.00 – 13.20 Óstaðbundin störf og óskabúaseta: Eru þesskonar störf tækifæri eða ógn fyrir landsbyggðina m.t.t. íbúaþróunar? Vífill Karlsson
13.20 – 13.30 Byggðabragur ungs fólks. Gréta Bergrún.
13.30 – 13.50 Strandveiðar og byggðakvótar: Hafa þau kerfi áhrif á útsvarstekjur viðkomandi sveitarfélaga. Vífill Karlsson.
13.50 – 14.10 Kynjuð upplifun jafnréttis í sveitarfélögum og mismunandi stærðum byggðarlaga. Gréta Bergrún
14.10 – 14.20 Kaffiáfylling
14.20 – 14.40 Umræður
14.40 – 15.30 Hvað er að frétta úr landshlutanum? Nokkrir héraðsfréttamenn fara yfir málin úr sínum landshlutum, áskoranir og byggðamál sem ættu að fá athygli fræðafólks. Umræður og spurningar úr „sal“
Microsoft Teams fundarhlekkur
Join: https://teams.microsoft.com/meet/3558195951545032...
Meeting ID: 355 819 595 154 503 2
Passcode: S6UJ2cQ7
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta