Starf kennslustjóra við Háskólann á Bifröst 25. júní 2020

Starf kennslustjóra við Háskólann á Bifröst

Háskólinn á Bifröst leitar að kennslustjóra með skipulags- og stjórnunarhæfileika, reynslu á sviði skólamála og metnað og áhuga á að taka virkan þátt í frekari uppbyggingu og þróun fjarnáms. Háskólinn á Bifröst er framsækinn háskóli sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 20 ár.  

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Stjórnun kennslu- og þjónustusviðs skólans.
  • Ábyrgð á kennslu- og prófakerfum og þátttaka í þróun stafrænnar þjónustu.
  • Ábyrgð á skipulagi, mati á námi, innritun, prófum og brautskráningu nema.
  • Ábyrgð á tölfræðilegum upplýsingum.
  • Þróun á sviði kennslumála, námskrár, kennslufyrirkomulags ofl. 
  • Ábyrgð á birtingu námskeiðslýsinga og námskráa í samráði við deildarforseta.
  • Ábyrgð á upplýsingastreymi til kennara og nema um skipulagsmál.
  • Skipulagning fræðslu fyrir kennara í samvinnu við deildarforseta.
  • Þátttaka í nefndarstarfi utan og innan skólans eftir atvikum.
  • Samstarf og samráð við aðra stjórnendur skólans varðandi kennslumál.
  • Kennslustjóri situr í framkvæmdastjórn skólans og háskólaráði.

Hæfniskröfur:

  • Meistaragráða sem nýtist í starfi.
  • Þekking á skólaumhverfi, kennslukerfum, uppbyggingu og þróun náms.
  • Reynsla af umsjón og skipulagsmálum í skólastarfi.
  • Reynsla af stjórnun, skipulagsmálum og/eða kennslu á háskólastigi er kostur.
  • Færni í greiningu og túlkun tölfræðilegra gagna.
  • Leiðtoga- og stjórnunarfærni.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Samskipta- og samráðsfærni.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.

Umsókn: Með umsókn skulu fylgja náms- og starfsferilságrip, afrit af útskriftarskírteinum og kynningarbréf þar sem kemur fram m.a. lýsing á hugmyndum umsækjanda um hlutverk kennslustjóra á háskólastigi, hugmyndafræði í kennslumálum og stjórnun og teymisvinnu starfsfólks. Starfsstöð: Bifröst.

Nánari upplýsingar og umsóknarvef er að finna hér: https://alfred.is/starf/kennslustjori

Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2020.

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta