Nemendaskrá

Upplýsingar um námsferil nemenda,  skráningar í og úr námskeiðum og einkunnir er að finna í skráningarkerfinu Uglu.

Formlegar útskriftir frá Háskólanum á Bifröst fara fram í júní og febrúar ár hvert, nemendur eru einnig útskrifaðir í september og gefst þá kostur á að mæta í útskriftarathöfn í febrúar. Skráning í útskrift fer fram með rafrænum hætti og er send tilkynning þar að lútandi til nemenda. Prófskírteini eru á íslensku og ensku.

Nemendur geta skráð sig í námskeið á þeim tíma sem háskólaskrifstofa auglýsir opið fyrir skráningu í námskeið. Nemendur skrá sig sjálfir í námskeið í gegnum Uglu. Mikilvægt er að nemendur skrái sig rétt og fyrir auglýstan skráningarfrest.

Nemendum er bent á að senda tölvupóst á verkefnastjóra viðeigandi deildar:


 
 Soffía Dagmar Þorleifsdóttir
 Verkefnastjóri háskólagáttar – haskolagatt hjá bifrost.is
 verkefnastjóri félagsvísindadeildar - felagsvisindadeild hjá bifrost.is
 verkefnastjóri lagadeildar - lagadeild hjá bifrost.is

  Helena Dögg Haraldsdóttir
  Verkefnastjóri viðskiptadeildar - vidskiptadeild hjá bifrost.is

  Guðrún Olga Árnadóttir
  Verkefnastjóri meistaranáms - meistaranam hjá bifrost.is


Sótt er um staðfestingu á skólavist og áfangavottorð í þjónustugátt skólans.