Nýnemar
Háskólinn á Bifröst er persónulegur háskóli þar sem er lagður metnaður í að bjóða nemendum góða og persónulega þjónustu. Hér er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir nemendur við Háskólann á Bifröst.
Umsækjendur geta fylgst með stöðu umsóknar sinnar með því að smella hér.
Hagnýtar upplýsingar við upphaf náms
Nemendur fá úthlutað auðkenni og lykilorði til þess að komast inn á kennslukerfið, Uglu, og vefpóstinn. Nemandi getur sótt þessar upplýsingar hér þegar staðfestingargjald vegna námsins hefur verið greitt. Við greiðslu staðfestingargjalds er litið svo á að nemandi hyggist hefja nám við Háskólann á Bifröst á næstu önn og er staðfestingargjaldið síðar dregið frá upphæð skólagjalda.
Nýnemar skrá sig sjálfir í námskeið í Uglu á fyrstu önninni. Námskeiðsframboð og skipulag næstu annar er að finna á heimasíðu skólans undir „Þjónusta – Nemendaskrá“.
Námskrá og yfirlit yfir námsskipulag hverrar námsleiðar er að finna á heimasíðu skólans undir hverju sviði fyrir sig.
Bókalistar birtast á Uglu fyrir hvern og einn nemanda miðað við skráningar hans í námskeið.
Undirbúningur fyrir nám á Bifröst
Til þess að fá tilfinningu fyrir því sem koma skal mælum við með því að þið skoðið á kynningarmyndbandið okkar um það hvernig eigi að undribúa sig fyrir nám við Háskólann á Bifröst.
Helstu tengiliðir nemenda:
Við Háskólann á Bifröst er starfandi náms- og starfsráðgjafi sem sinnir ráðgjöf um námstækni, námsleiðir og námsframvindu. Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum jafnframt stuðning í námi og/eða varðandi persónuleg málefni. Hér er að finna upplýsingar um viðtalstíma náms- og starfsráðgjafar.
Nemendaskrá tekur á móti skráningu í og úr námskeiðum og veitir ráðgjöf um skipulag náms, framvindu þess og val á námskeiðum.
Prófstjóri sér um utanumhald prófa og svarar fyrirspurnum varðandi prófamiðstöðvar og fleira.
Þjónustuborð Háskólans á Bifröst er opið alla virka daga frá kl. 8 – 12 og 13 – 16 þar sem þjónustustjóri er ávallt tilbúin að aðstoða nemendur.
Aðrir áhugaverðir tenglar:
Lífið á Bifröst
- Afþreying og félagsstarf
- Umhverfi og útivist
- Fyrir börn og unglinga
- Þjónusta í Borgarbyggð
- Nemendafélagið
- Hótel Bifröst
- Bókasafn
Háskólaþorpið
Helstu dagsetningar
Háskólinn á Bifröst á samfélagsmiðlum
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta