Málstofa í menningarstjórnun: Vistkerfi skapandi greina og umrót í menningarstörfum 9. apríl 2026

Málstofa í menningarstjórnun: Vistkerfi skapandi greina og umrót í menningarstörfum

Fimmtudaginn 9. apríl kl. 15:00 verður haldin opin málstofa í menningarstjórnun í Glanna, Háskólanum á Bifröst í Borgartúni 18. Umræðuefnið er vistkerfi skapandi greina og þær breytingar sem nú eiga sér stað í umhverfi menningariðnaðarins. 

Á málstofunni verður fjallað um stöðu skapandi greina á Íslandi í ljósi nýlegra talna um starfandi í menningu og skapandi greinum. Sérstakri athygli verður beint að því hverjir teljast til skapandi greina, hvernig störf innan geirans eru skilgreind og hvernig starfsstöður eru að þróast, til dæmis í samspili sjálfstæðrar starfsemi og launaðrar vinnu. Einnig verður rætt hvernig breytingar á vinnumarkaði, skipulagi menningarstarfs og tengslum við aðrar atvinnugreinar hafa áhrif á þróun skapandi greina. Hvernig samdráttur í fjölmiðlum og kvikmyndaiðnaði hefur áhrif á heildarmyndina og hvernig tæknibreytingar geta breytt starfaskipulagi.  

Markmið málstofunnar er að skapa vettvang fyrir samtal um hvernig best sé að greina, skilja og mæla þennan mikilvæga hluta íslensks atvinnu- og menningarlífs. Málstofan er opin öllum sem hafa áhuga á menningarstjórnun, skapandi greinum og menningarstefnu.

Frummælendur eru Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs um skapandi greinar, og Njörður Sigurjónsson, prófessor og fagstjóri í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst.