Þrettán útskrifuðust úr Mætti kvenna 12. apríl 2019

Þrettán útskrifuðust úr Mætti kvenna

Þann 12. apríl síðastliðinn útskrifuðust 13 konur úr Mætti kvenna. Um er að ræða 11 vikna nám fyrir konur sem vilja öðlast þekkingu og færni í rekstri fyrirtækja. Námið hefur átt miklum vinsældum að fagna og hafa tæplega 950 konur útskrifast úr því frá árinu 2004.

Útskriftin fór fram við hátíðlega athöfn á Bifröst og ávarpaði Vilhjálmur Egilsson útskriftarhópinn og aðra viðstadda. Starfsfólk og velunnarar Háskólans á Bifröst eru stolt að því að vera í fararbroddi í valdeflingu kvenna og stuðla að kynbundnu jafnrétti í hvívetna.

Kennsla í Mætti kvenna fer fram í fjarnámi en þar að auki eru kennslustundir á vinnulotum þar sem lögð verður áhersla á hópavinnu nemenda. Vinnuhelgi er í upphafi og um miðbik námsins en náminu lýkur með formlegri útskrift. Næsta námskeið hefst 7. september næsta haust og má nálgast allar helstu upplýsingar um námið hér.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta