Starfsnám
Nemendur geta sótt um starfsnám í stað valnámskeiðs. Starfsnámið er í öllum tilvikum ólaunað en nemendur fá 6 ECTS einingar fyrir 160 klst. vinnu. Starfsnáminu má sinna á 4-12 vikna tímabili í samráði við vinnustaðinn.
Starfsnám er valnámskeið í öllum deildum og námslínum í grunn- og meistaranámi skólans.
Skilyrði þess að komast í starfsnám er að nemandi hafi lokið 110 ECTS einingum í grunnnámi eða 30 ECTS einingum í meistaranámi og hafi fyrstu einkunn.
Nemendur finna sér sjálfir vinnustað/ stofnun til að sinna starfsnáminu. Ef þeir lenda í vandræðum geta tengiliðir deilda skólans aðstoðað.
Sækja þarf um námskeiðið í Uglu líkt og önnur námskeið skólans. Auk þess þurfa nemendur að fylla út sérstakt umsóknar eyðublað.
Umsókninni þarf að fylgja vönduð ferilskrá sem hægt er að senda áfram á fyrirtæki ef til þess þarf.
Umsjónarmaður starfsnáms tekur á móti umsókninni og ber hana undir tengiliði deildanna við skólann. Þegar umsókn hefur verið samþykkt hefur umsjónarmaður samband við nemandann og viðkomandi fyrirtæki. Undirritað er samkomulag á milli fyrirtækis, nemandans og skólans.
Nemandi þarf að senda umsjónarmanni verkáætlun áður en starfsnám hefst. Nemandinn heldur úti dagbók á meðan á starfsnáminu stendur. Skila þarf lokaskýrslu og hafa dagbókina í viðhengi. Umsjónarmaður fær svo umsögn frá vinnustaðnum um nemandann. Nemandinn fær einkunnina staðið/fallið í ferilinn sinn.
Nemendur sækja um starfsnám hér
Frekari upplýsingar um starfsnám veitir umsjónarmaður starfsnáms á netfangið starfsnám hjá bifrost.is
Hér má finna viðmið við starfsnám í grunn- og meistaranámi.