Skráðir nemendur í nám við Háskólann á Bifröst geta sótt um mat á fyrra námi hafi þeir stundað sambærilegt háskólanám. Sjá umsóknareyðublað.
Umsóknir skal senda til á viðeigandi verkefnastjóra:
Sólveig Hallsteinsdóttir
Verkefnastjóri háskólagáttar – haskolagatt@bifrost.is
Verkefnastjóri félagsvísindadeildar felagsvisindadeild@bifrost.is
Verkefnastjóri lagadeildar lagadeild@bifrost.is
Helena Dögg Haraldsdóttir
Verkefnastjóri viðskiptadeildar vidskiptadeild@bifrost.is
Guðrún Olga Árnadóttir
Verkefnastjóri meistaranáms meistaranam@bifrost.is
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Útfyllt umsóknareyðublað; sjá eyðublað vegna umsóknar um mat á fyrra námi.
Staðfest prófskírteini/námsferilsyfirlit frá viðkomandi háskóla.
Staðfestar námskeiðslýsingar frá viðkomandi háskóla úr kennsluskrá þess árs sem námskeið voru tekin.
Almennar reglur um mat á fyrra námi:
Nemendur sem hafa lokið námskeiðum á sama háskólastigi og eru sambærileg þeim sem kennd eru við Háskólann á Bifröst eiga völ á að óska eftir mati á þeim námskeiðum.
Ekki eru metin námskeið með undir 6,0 í einkunn.
Ef meira en 5 ár eru liðin frá fyrra námi þarf undanþágu deildarforseta.
Í grunnnámi er heimilt að meta allt að 90 ECTS einingar úr fyrra námi.
Í framhaldsnámi er heimilt að meta allt að 30 ECTS úr fyrra námi.
Umsóknarfrestur rennur úr:
30. september á haustönn
30. janúar á vorönn
Meðferð umsókna getur tekið allt að fjórar vikur; hvert tilvik er metið fyrir sig.
Úr 23. gr. reglugerðar skólans
„...Í grunnnámi er heimilt að meta allt að 90 ECTS-einingar sem nemandi hefur lokið í öðrum háskólum eða námsleiðum auk skiptináms. Í framhaldsnámi er heimilt að meta til eininga allt að 30 einingum úr öðrum háskólum eða námsleiðum, auk skiptináms, sem hluta af meistaranámi við skólann. Almenn krafa við mat á námsgreinum í grunn- og framhaldsnám er einkunnin 6 eða hærra.“