Sjálfbærnistjórnun
Námskeiðið fjallar um hvernig stjórnendur, sérfræðingar og aðrir sem láta sig framtíðina varða geta brugðist við vaxandi kröfum um sjálfbærni í samfélagi og atvinnulífi.
Sjálfbærnistjórnun er mikilvægt viðfangsefni í nútíma samfélagi þar sem við stöndum frammi fyrir loftslagsbreytingum, mengun, auðlindaþurð og fleiri áskorunum sem ógna lífkerfi jarðar og efnahagslegum stöðugleika. Fyrirtæki og samfélög standa frammi fyrir auknum lagakröfum á sviði sjálfbærni auk þess sem kröfur ýmissa hagaðila (t.d. fjárfesta, viðskiptavina og starfsmanna) eru fjölbreyttar og gjörólíkar því sem þekktist fyrir örfáum árum síðan. Á Íslandi höfum við sérstöðu hvað varðar endurnýjanlegu orkuauðlindir og ósnortna náttúru en glímum engu að síður við vanda við að ná markmiðum um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og um aðlögun að loftslagsbreytingum.
Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning nemenda á þessum flókna veruleika og veita þeim hagnýta innsýn í hvernig sjálfbærni getur verið drifkraftur nýsköpunar, samkeppnishæfni og árangurs til lengri tíma litið. Námskeiðið sameinar fræðilega umræðu og raunhæf verkefni þar sem áhersla er lögð á að þjálfa nemendur í greiningu, gagnrýnni hugsun og stefnumótun.
Fjallað verður um sjálfbærnistjórnun út frá ólíkum sjónarhornum – allt frá markaðssetningu og fjármálum til hringrásarhugsunar og áhættustýringu. Námskeiðið er ætlað nemendum með ólíkan bakgrunn sem vilja öðlast fræðilegan grunn og færni til að hafa áhrif á sjálfbærnivegferðina – hvort sem er innan fyrirtækja, hjá hinu opinbera eða í þriðja geiranum.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vilja geta mótað sjálfbærnisstefnur og sett sjálfbærnimarkmið fyrir fyrirtæki, geta beitt gagnrýninni hugsun og tekið þátt í opinberri umræðu um sjálfbærni.
Þátttökugjald er 75.000 kr
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu á Vesturlandi. Kennsla hefst 18. ágúst 2025 og stendur til 4.október 2025. Ein fjögurra stunda vinnustofa verða haldin á Bifröst á tímabilinu 4. - 7. september 2025 en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 4. október.
Kennari
Kennari námskeiðisins er Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.