Persónuverndarréttur og upplýsingaöryggi
Námskeiðið snýr að persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, einkum með hliðsjón af lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem byggð eru á persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins. Fjallað verður um undirstöðureglur, þ. á m. heimildir til vinnslu almennra og viðkvæmra persónuupplýsinga og þær meginreglur sem ávallt skal fylgja við vinnslu persónuupplýsinga. Vikið verður að réttindum einstaklinga gagnvart þeim sem vinna persónuupplýsingar þeirra og þær leiðir sem einstaklingar geta farið ef þeir telja á sér brotið. Jafnframt verður vikið að skyldum ábyrgðaraðila og vinnsluaðila og fjallað um heimildir flutninga persónuupplýsinga yfir landamæri.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vilja geta tekið þátt í faglegu samsatfi um réttarsviðið, tjáð sig skriflega og munnlega á markvissann og skýran hátt um greiningu, mat og úrlausn á lögfræðilegra álitaefna á réttarsviðinu.
Þátttökugjald er 100.000 kr
Gerð er krafa um grunnnámsgráðu.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu á Vesturlandi. Kennsla hefst 24. ágúst 2026 og stendur til 10.október 2026. Ein fjögurra stunda vinnustofa verða haldin á Bifröst á tímabilinu 17. - 20. september 2026 en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 4.-10. október.
Kennari
Kennari námskeiðisins er Valborg Steingrímsdóttir stundakennari við Háskólann á Bifröst.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2026.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
