Masterklass - framsækni og örugg tjáning
Masterklass/vinnustofa fyrir þá sem vilja öfluga þjálfun í að koma fram af öryggi, ögra sér og taka þátt í ræðuhöldum, fundarstjórn, glærukynningum, tækifærisræðum og fleiri verkefnum. Námskeiðið fer fram frá lok maí og út júní.
Nemendur fá tækifæri til að flytja ræður, taka þátt í málfundum, vera með útileiðsögn í náttúrunni, flytja tækifærisræður í hádegis-og kvöldverði, flytja glærukynningar í tíma, sjá um fundarstjórn, eða dómnefndarstörf.
Markmiðið er að nemendur geti notið þess að standa fyrir máli sínu, samið og flutt ræður, stýrt fundum, stýrt dagskrá í útivist, hátíðarkvöldverði og við fleiri tækifæri. Að nemendur geti tjáð sig af öryggi í launaviðtölum, á vinnumarkaði og í félagsstarfi. Komi með kjarna málsins á hnitmiðaðan hátt, geti beitt virkri hlustun og haft jákvæð áhrif í hópastarfi og almennt í lýðræðissamfélagi.
Fyrir hverja og þátttökugjald
Námskeiðið hentar öllum, til dæmis kennurum, stjórnendum, leiðsögumönnum, fólki í félagsstörfum eða stjórnmálum, fólki sem kemur fram í fjölmiðlum og öðrum sem vilja fá þjálfun í að koma fram af öryggi.
Þátttökugjald er kr. 89.900
Ath. veitingar eru ekki innifaldar í þátttökugjaldi.
Námskeiðið veitir ekki einingar.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í blöndu af staðnámi og fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur og kennsla hefst 26. maí og stendur til 3. júlí.
Laugardagur 6.júní kl. 13:00 – 18:00 Laugardalur og svo Borgartún (eða á Teams)
Mæting fyrir kl. 13 í Kaffi Flóra Grasagarði. Hægt að fá sér kaffi saman fyrir útitímann. Hittumst inni í Kaffi Flóru.
Kennsla og útiverkefni hefst kl. 13:00 Leiðsögumenn um Laugardal flytja kynningar sínar.
Farið í Borgartún kl. ca. 15:30 (Teams) Glærukynninar á vöru/fyrirtæki/málefni. Málfundur ef tími leyfir.
Laugardagur 13. júní STAÐLOTA Í BORGARNESI (Bankaíbúðin nánar síðar).
OG ENGLENDINGAVÍK veitingastaður í Borgarnesi um kvöldið.
Frá kl. 12:30 til kvölds. MJÖG MIKILVÆGT AÐ MÆTA.
Unnið með veislustjórnun, ræðumennsku, leiðsögumennsku… við borðhald, í ræðupúlti og úti í náttúrunni. (Kvöldmatur á laugardegi.
Ath. til að fá sem mest út úr kúrsinum skulið þið leggja áherslu á að taka þátt í staðlotunni í Borgarnesi allan tímann.
Föstudagur 19.júní kl. 17 ,,Vísindaferð” (ef veður leyfir) ANNARS Á TEAMS
Hópastarf úti. Nemendur kynna bækurnar sem þeir völdu fyrir hópnum sínum.
,,Ísbrjótar” og kokteilboð.
Fimmtud. 25.júní kl. 16:15-19 . Staðsetning Vatnsmýri ÚTI OG INNI.
Útiverkefni frá 16:15 Nemendur flytja óformlega ,,tölu” í náttúrunni um ,,Erfitt verkefni sem ég hef glímt við”. (Klæðnaður eftir veðri).
Og svo málfundur inni. Þeir sem alls, alls ekki komast gætu verið með á facetime í samráði við samnemendur.
Sunnudagsverkefnin og hvernig gekk með þau? Og ,,stefnumót við andstæðar skoðanir".
Kennari
Kennari námskeiðsins er Sirrý Arnardóttir. Sirrý á að baki 30 ára farsælan feril í fjölmiðlum. Hún stýrði útvarps- og sjónvarpsþáttum um árabil, ritstýrði tímariti, starfaði sem blaðamaður og við almannatengsl. Er með próf í félags- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og sótti framhaldsnám á vegum Utanríkisráðuneytisins hjá bandarískri fjölmiðlasamsteypu víðs vegar um USA. Hefur skrifað 8 bækur m.a. ,,Örugg tjáning – betri samskipti”. Sirrý hefur rekið sig sem fyrirtæki í fjölda ára, verið framkvæmdastjóri góðgerðasamtaka, haldið fyrirlestra og námskeið víða um land og á Spáni og kennt við Háskólann á Bifröst síðan 2008. Nánar á www.sirry.is
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 19. maí
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.
