Íslenska Miðstig 1 - B1.1

Íslenska Miðstig 1 - B1.1

Námskeiðið er á stigi B1.1 á evrópska tungumálarammanum. 

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Notast er við vendikennslu sem felur í sér að nemendur fá fyrirlestra, verkefni og æfingar á rafrænu formi og sækja síðan vikulega umræðu- og verkefnatíma með kennurum þar sem þeir fá þjálfun í tali og hlustun á íslensku.

Unnið verður með beygingar nafnorða, sagna, töluorða, persónufornafna og lýsingarorða og samsettar tíðir. Nemandi öðlast skilning á inntaki flóknari texta um bæði hlutbundin og afstæð efni.  Nemandi öðlast færni í að tjá sig á íslensku án hiks eða mikillar umhugsunar, og setja fram rök eða ástæður, skriflega og munnlega, að marki.  

Gert er ráð fyrir að nemendur taki virkan þátt í samræðum í verkefna- og umræðutímum. Vikulegir tímar verða á Teams. 

Aðgangsviðmið og einingafjöldi

Gert er ráð fyrir að þeir sem hefji námskeiðið hafi grunn í íslensku sem samsvarar stigi A2.2. Námskeiðið veitir 10 einingar á framhaldsskólastigi.

Kennari

Kennari námskeiðsins er Sigríður Kristinsdóttir.

Verð

Verð fyrir námskeiðið er 100.000 kr. 

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2026.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.