Atferlishagfræði og fjármál

Atferlishagfræði og fjármál

Hefur þú velt fyrir þér af hverju hagfræðingar og fjármálasérfræðingar hafa ekki alltaf rétt fyrir sér? Þetta námskeið  gefur innsýn inn í atferlishagfræði og atferlisfjármál. Atferlishagfræði samþættir rannsóknir úr sálfræði, taugavísindum og rekstrarhagfræði.  Atferlishagfræði fjallar um vitsmunalega getu, samskipti, siðferði og tilfinningar frá hagfræðilegur sjónarhorni. Atferlishagfræði skoðar afleiðingar mannlegar hegðunar á hagfræðilegar ákvarðanir og snýst fyrst og fremst um mörk rökhyggju við ákvarðanatöku einstaklinga og stofnana. Líkön atferlisfjármála, sem eitt af sviðum atferlishagfræðinnar, skoðar hvernig sálfræðilegir þættir og hlutdrægni hefur áhrif á fjárhagslega hegðun fjárfesta og fjármálasérfræðinga á fjármálamörkuðum. Þar að auki hvernig áhrif og hlutdrægni geta verið uppspretta skýringa á hvers kyns markaðsfrávikum. Innan atferlisfjármála er gengið út frá því að þátttakendur á fjármálamörkuðum séu ekki fullkomlega röksamir,  frekar séu undir áhrifum sálfræðilega mannlegra þátta  sem geta leitt til órökréttra ákvarðana á mörkuðum.

Sjá kennsluskrá hér. 

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja þekkja og skilja mikilvægustu hugtök atferlishagfræðinar.

Þátttökugjald er 75.000 kr. 

Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur og kennsla hefst 26. maí og stendur til 3. júlí.

Kennari

Kennari námskeiðsins er Erlendur Ingi Jónsson. 

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til 26. maí.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.