Íslenska Miðstig 1 - B1.1
10 einingar á framhaldsskólastigi
100.000 kr.
14 vikna námskeið
Sigríður Kristinsdóttir
Íslenska Miðstig 1 - B1.1
Námskeiðið er á stigi B1.1 á evrópska tungumálarammanum.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Notast er við vendikennslu sem felur í sér að nemendur fá fyrirlestra, verkefni og æfingar á rafrænu formi og sækja síðan vikulega umræðu- og verkefnatíma með kennurum þar sem þeir fá þjálfun í tali og hlustun á íslensku.
Unnið verður með beygingar nafnorða, sagna, töluorða, persónufornafna og lýsingarorða og samsettar tíðir. Nemandi öðlast skilning á inntaki flóknari texta um bæði hlutbundin og afstæð efni. Nemandi öðlast færni í að tjá sig á íslensku án hiks eða mikillar umhugsunar, og setja fram rök eða ástæður, skriflega og munnlega, að marki.
Gert er ráð fyrir að nemendur taki virkan þátt í samræðum í verkefna- og umræðutímum. Vikulegir tímar verða á Teams.
Aðgangsviðmið og einingafjöldi
Gert er ráð fyrir að þeir sem hefji námskeiðið hafi grunn í íslensku sem samsvarar stigi A2.2. Námskeiðið veitir 10 einingar á framhaldsskólastigi.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Sigríður Kristinsdóttir.
Verð
Verð fyrir námskeiðið er 100.000 kr.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2026.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
