Alþjóðasamskipti Fjarnám
Endurmenntun

Alþjóðasamskipti

6 ECTS einingar á meistarastigi.

Umsóknarfrestur er til 24. ágúst
100.000 kr.
24. ágúst - 10. október
7 vikna námskeið
Dr. Magnús Árni Skjöld

Alþjóðasamskipti

Í þessu námskeiði er saga og uppbygging alþjóðakerfisins kynnt sem og lykilatriði sem tengjast alþjóðastjórnmálum. Helstu kenningar um alþjóðasamskipti verða notaðar til að útskýra alþjóðastjórnmál á tímabilinu eftir kalda stríðið. Hlutverk ólíkra aðila í alþjóðakerfinu, ríkja, alþjóðastofnana, fjölþjóðlegra fyrirtækja og frjálsra félagasamtaka, verður skoðað í tengslum við áfallastjórnun, vopnuð átök og viðbragðshæfni. 

Í seinni hluta námskeiðsins verður sjónum beint að sérstökum viðfangsefnum alþjóðastjórnmála s.s. umhverfismálum, alþjóðaviðskiptum og fátækt í þróunarlöndunum, jafnréttismálum og hryðjuverkum. Þrjú svæði verða notuð sem dæmi í þeim efnum, Fyrrum Sovétríkin,, Miðausturlönd og norðurskautssvæðið.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja efla færni sína í alþjóðasamskiptum.

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu. Kennsla hefst 24. ágúst og stendur til 10. október 2026. Um fjögurra stunda staðlota í verður á tímabilinu 17.-20. september en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 10. október 2026. 

Kennari

Kennari námskeiðsins er Dr. Magnús Árni Skjöld, dósent við Háskólann á Bifröst

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2026.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.