5. janúar 2026

Nýnemakynning - vor 2026

Nýnemakynning fyrir nemendur sem eru að hefja nám á vorönn 2026 verður haldin mánudaginn 5. janúar kl. 11:00 – 13:00 á Teams.

Hlekkur á Teams nýnemakynningu 

Á nýnemakynningu kynnum við Háskólann á Bifröst fyrir nýjum nemendum og þeim gefin innsýn í gangverk fjarnámsins og þá þjónustu sem þeim stendur til boða. 

Dagskráin hefst með því að Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir staðgengill rektors, býður nemendur velkomna í Háskólann á Bifröst.  Þar á eftir fá nemendur kynningu á deildum skólans og helstu þjónustu sem þeim stendur til boða.

Dagskrá: 

11:00  Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir staðgengill rektors býður nemendur velkomna í Háskólann á Bifröst.  
11:10

 Deildarforsetar kynna deildir sínar: 

  • Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir deildarforseti félagsvísindadeildar
  • Haukur Logi Karlsson deildarforseti lagadeildar
  • Guðrún Johnsen deildarforseti viðskiptadeildar
11:20  Ertu örugglega kominn í öll kerfin?  Bernharður Guðmundsson verkefnastjóri á upplýsingatæknisviði fer yfir helstu kerfi sem nemendur nota við námið.
11:35  Náms- og starfsráðgjöf - Helga Rós Einarsdóttir og Unnur Símonardóttir náms- og starfsráðgjafar fara yfir að hverju þarf að huga í fjarnámi.  
11:50  María Berndsen og Jóhanna Marín Óskarsdóttir kynna Canvas námsumhverfið.
12:00  Hlynur Finnbogason kynnir Inspera prófakerfi háskólans.
12:20  Hlé
12:30  Kynning á OpenEU - samstarfsverkefni evrópskra fjarnámsháskóla - Susanne Arthur verkefnastjóri OpenEU kynnir.
12:40  Rósa S. Jónsdóttir forstöðukona bókasafns kynnir þjónustu bókasafnsins og leitir.is 
12:50  Nemendafélag Háskólans á Bifröst kynnir starfsemi félagsins. 

Skoða upplýsingaveitu nýnema