13. júní 2026

Háskólahátíð Háskólans á Bifröst 13. júní

Mynd af blómum

Háskólahátíð Háskólans á Bifröst verður í Hjálmakletti í Borgarnesi, laugardaginn 13. júní, kl. 11:00. Alls verða 278 nemendur brautskráðir á hátíðinni; 39 nemendur úr Háskólagátt, 63 úr grunnnámi og 141 úr meistaranámi. Ef litið er til einstakra deilda háskólans, þá verða samtals 157 nemendur brautskráðir úr viðskiptadeild, 25 úr lagadeild og 57 úr félagsvísindadeild. 

Hátíðardagskráin er með áþekku sniði og áður. Framkvæmdastýra kennslu og þjónustu, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, setur háskólahátíðina og að því búnu mun Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor ávarpa útskriftarefnin. Að því loknu munu verða afhent hvatningaverðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur. Enn fremur munu nemendur munu flytja ávörp fyrir hönd Háskólagáttar, grunnnema og meistaranema.

Tónlistafólkið Jón Þór Sigmundsson, Edda María Jónsdóttir og Isobel Líf Díaz munu flytja valin sönglög í upphafi dagskrár og milli atriða.

Unnt verður að fylgjast með útskriftarhátíðinni í beinu streymi hér á háskólavefnum.

Sjá dagskrá útskriftarhátíðarinnar.