26. október 2015

Sigruðu nýsköpunarkeppnina Ræsing í Fjallabyggð

Þau Sigtryggur Arnþórsson og Sæunn Tamar Ásgeirsdóttir kynntust í námi á Bifröst en fyrir stuttu unnu þau nýsköpunarkeppnina "Ræsing í Fjallabyggð". Sæunn er útskrifaður viðskiptafræðingur og Sigtryggur er með BS próf í viðskiptalögfræði og er núna í ML námi við Háskólann á Bifröst. Þau unnu nýverið nýsköpunarkeppnina Ræsing í Fjallabyggð með áhugaverða viðskiptahugmynd þar sem þeim var hrósað sérstaklega fyrir vel unna og faglega viðskiptaáætlun. Okkur langaði að vita meira um keppnina og út á hvað viðskiptaáætlunin gengur og tókum því viðtal við þau Sigtrygg og Sæunni um keppnina.

Út á hvað gengur viðskiptahugmyndin í stuttu máli?

Við ætlum okkur að byrja að bjóða uppá afþreyingaferðir frá Ólafsfirði til Grímseyjar sumarið 2017. Grímsey hefur verið þó nokkuð kynnt fyrir erlendum ferðamönnum og er mjög áhugaverður staður fyrir þær sakir að heimskautsbaugur liggur yfir eyjuna. Okkur langar því að bjóða ferðamönnum að komast norður fyrir heimskautsbaug og fá það sérstaklega vottað. Farið verður úr höfn frá Ólafsfirði á nokkuð hraðskreiðum bát en báturinn sjálfur auk staðreyndarinnar að úr höfn í höfn er styðst að sigla frá Ólafsfirði til Grímseyjar, gerir það að verkum að sjóferðin til og frá eyjunni verður rúmlega helmingi styttri en það sem gengur og gerist í dag. Í ferðunum munu gestir fá ómetanlega upplifun af mikilli náttúrufegurð Íslands bæði í siglingunni sjálfri og með göngu um Grímsey. Til viðbótar er fjölskrúðugt fuglalíf á þessum slóðum en eyjan hýsir sérstaklega mikið af lundum en þá er einnig ekki ósennilegt að verða var við hvali og höfrunga á leiðinni til og frá eyjunni. Með í ferðinni verða svo leiðsögumenn sem sjá um ýmsar aðrar skemmtilegar uppákomur svo sem að segja sögur um svæðið, bjóða þeim sem hafa áhuga að skjóta golfkúlu yfir heimskautsbaug og hvað eina annað sem mun gera ferðina skemmtilegri og upplifunina meiri.

Hvers vegna ákváðu þið að taka þátt?

Við ákváðum að taka þátt í keppninni til að sjá hvort  viðskiptahugmyndin væri eins góð eins og við töldum hana vera og fá þá staðfestingu fyrir því. Í þessari keppni, sem og öðrum nýsköpunarkeppnum, fer dómnefnd af fagfólki yfir viðskiptahugmyndina og viðskiptaáætlunina auk þess sem nefndin metur hvort raunhæft er að verkefnið verði að veruleika eða ekki. Þannig er niðurstaðan úr keppninni ákveðin staðfesting á að verkefnið er nægilega vel undirbúið til þess að fara á fullt í að finna það fjármagn sem upp á vantar.  Keppnir sem þessar eru einnig góð leið til að setja pressu á verkefnið, þar sem það þarf augljóslega að ljúka við gerð viðskiptaáætlunarinnar innan ákveðins tímafrests.

Hvernig nýttist ykkar menntun frá Bifröst í viðskiptahugmyndina og viðskiptaáætlunina?

Að lokinni kynningu var okkur sérstaklega hrósað fyrir vandaða og faglega viðskiptaáætlun af forsvarsmanni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Sú þekking og þeir starfshættir sem við höfum tamið okkur við námið á Bifröst skiptu hér öllu máli, bæði hvað varðar gæði og framsetningu á efninu. Til viðbótar kom sér sérstaklega vel öll sú reynsla sem við höfum öðlast á Bifröst við að halda kynningar fyrir samnemendur sem og aðra Bifrestinga. Þessi reynsla skilaði sér í að við gátum komið öruggari fram fyrir framan hóp af fólki og kynnt efnið á skýrari og betri máta en ella. Þá var Frumkvöðlasetrið Exo í Háskólanum á Bifröst vel nýtt sólarhringana fyrir lokaskil en aðstaðan þar sem og umræður um hugmyndina við samnemendur hjálpuðu einnig mikið.

Hvaða þýðingu hafa þessi verðlaun fyrir ykkur?

Verðlaunin auka líkurnar á að við náum að fjármagna viðskiptahugmyndina og þar með auka þau líkurnar á að hugmyndin verði að veruleika. Það kann að þykja kostnaðarsamt að láta smíða bát og gera hann út og almennt eru ekki í boði lán fyrir nema hluta af því fjármagni sem þarf til að tryggja reksturinn, því er allur svona meðbyr með verkefninu mjög jákvæður og ætti að auka áhuga fjárfesta fyrir verkefninu.

Eitthvað að lokum?

Hlakka til að sjá ykkur í Grímsey sumarið árið 2017.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta