Máttur kvenna til Tansaníu - grein úr Fréttablaðinu 6. febrúar 2015

Máttur kvenna til Tansaníu - grein úr Fréttablaðinu

ANNA ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR SKRIFAR

Samfélagsleg ábyrgð íslenskra fyrirtækja og stofnana á ekki aðeins að ná til þeirra sem hér búa hverju sinni heldur ber okkur sem einni ríkustu þjóð veraldar einnig að stuðla að framþróun annars staðar – sér í lagi þar sem neyðin er sárust.

Samkvæmt nýrri skýrslu Oxfam á eitt prósent jarðarbúa nálega helming auðs veraldar og tuttugasti hluti á 95 prósent eignanna. Því miður er fátækt enn útbreidd eins og raunin er víða í Afríku. En rannsóknir sýna að í baráttunni gegn fátækt bítur menntunin best – með menntun fær fólk tæki til að berjast úr örbirgð til bjargálna.

Í viðleitni til að leggja þeirri grundvallarbaráttu lið ræðst Háskólinn á Bifröst nú í það verkefni að flytja námskeiðið „Máttur kvenna“ út til Tansaníu og veita efnalitlum konum í þorpinu Bashay í Norður-Tansaníu ókeypis menntun. Markmiðið er að búa þær tækjum til að koma auga á viðskiptatækifæri í nærumhverfi sínu og færni til að koma þeim í framkvæmd. Rannsóknir sýna ótvírætt að besta leiðin til að draga úr vannæringu barna er að mennta mæður þeirra. Fjölskyldan öll nýtur góðs af atvinnusköpun kvenna, bætir hag heimilisins, veitir aðgang að heilbrigðisþjónustu og umfram allt stuðlar að menntun barna sem er lykillinn að árangri til framtíðar.

Styrkjum konurnar á heimavelli
Nálega þúsund íslenskar konur hafa farið í gegnum námskeiðið Máttur kvenna sem Háskólinn á Bifröst hefur haldið úti í áratug en því er ætlað að skóla konur til aukinnar þátttöku í nýsköpun og atvinnuuppbyggingu. Samkvæmt endurmati íslensku kvennanna styrkti námskeiðið þær verulega sem einstaklinga, starfsmenn, frumkvöðla og atvinnurekendur.

Hlutverk Háskólans á Bifröst er að mennta samfélagslega ábyrga leiðtoga og endurspeglast sú áhersla í Mætti kvenna. Og nú þegar áratugar reynsla er komin á þessa aðferð viljum við veita fleirum álíka tækifæri og prófa verkefnið í Afríku, þótt aðstæður séu vissulega öðruvísi og kennsluna þurfi að laga að háttum heimamanna.

Valið á Bashay í Tansaníu kemur til vegna tengsla minna við þorpið. Þar hef ég búið og rekið fyrirtæki í ferðaþjónustu (Tanzanice Farm) sem hefur skapað fjölda starfa fyrir heimamenn. Þau tengsl sem þar hafa skapast nýtast við að ná sem bestum árangri við yfirfærslu verkefnisins.

Til að undirbúa fyrsta námskeiðið í Tansaníu núna í apríl kemur ung kona, Resty, frá Tansaníu til Íslands og dvelur hér í 7 vikur. Hún mun fá handleiðslu hjá kennurum Háskólans á Bifröst sem munu kynna fyrir henni verkefnið og aðferðafræði þess. Resty mun í framhaldinu aðstoða kennarana sem fara til Tansaníu við að miðla námsefninu til kvennanna og taka þátt í handleiðslu verklegrar þjálfunar. Þetta skemmtilega verkefni felur í sér samstarf ólíkra heima, frumkvæði og gagnkvæma virðingu þar sem þátttakendur munu læra hver af öðrum.

Til verkefnisins í Bashay leggur Háskólinn á Bifröst fram kennara og umsýslu heima fyrir. En við getum þetta ekki ein. Og leitum því til Íslendinga. Mikilægt er að fá fyrirtæki og einstaklinga til liðs við okkur og styrkja verkefnið. Tanzanice Farm, Íslandsbanki og Bernhard Laxdal hafa þegar boðið fram stuðning og við eigum í viðræðum við fleiri góð fyrirtæki. En við vonum að fleiri fyrirtæki og einstaklingar vilji leggja málinu lið.

 

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta