Máttur Kvenna í Afríku, annar fasi 12. október 2015

Máttur Kvenna í Afríku, annar fasi

Annar fasi menntaverkefnisins Máttur kvenna í Afríku (Women Power Africa) er nú í undirbúningi. Í því þjálfa kennarar frá Háskólanum á Bifröst konur í Tansaníu til þess að koma á fót eigin rekstri. Sjá nánar á womenpowerafrica.org

Kynningarfundur um verkefnið og framtíð þess verður haldinn í hádeginu næstkomandi þriðjudag, 13. október 2015, í húsakynnum Háskólans á Bifröst í Reykjavík, að Suðurgötu 10. Magnús Árni Skjöld Magnússon gerir grein fyrir námskeiðinu sem haldið var í þorpinu Basay í norður Tansaníu í apríl síðastliðnum og eftirfylgni þess. Anna Elísabet Ólafsdóttir, aðstoðarrektor, greinir frá næsta fasa verkefnisins sem nú hefur göngu sína.

Liðinn áratug hafa nálega þúsund íslenskar konur hlotið haldbæra menntun til eigin valdeflingar í námskeiðinu Máttur kvenna sem Háskólinn á Bifröst heldur úti. Þetta verkefni hefur verið flutt til Tansaníu og aðlagað aðstæðum efnalítilla kvenna í þorpinu Bashay í norður Tansaníu. Markmiðið er að búa konurnar tækjum til að koma auga á viðskiptatækifæri í nærumhverfi sínu og færni til að koma þeim í framkvæmd.

Námskeiðið í apríl á þessu ári tókst með eindæmum vel. Þrír kennarar frá Bifröst auk sjálfboðaliða frá Þýskalandi ásamt samstarfsfólki á staðnum hélt þá úti tveggja vikna námskeiði um gerð viðskiptaáætlana. Fimmtíu og þrjár konur tóku þátt í námskeiðinu og hafa nokkrar þeirra nú þegar hafist handa við stofnsetningu eigin fyrirtækja; svo sem í verslun með til að mynda vefnaðarvöru, dagvöru og skrautmuni, í landbúnaði og meira að segja í einföldum fjármálaviðskiptum.

Í næsta fasa er ætlunin að a) halda á vori komanda framhaldsnámskeið fyrir konurnar sem tóku inngangsnámskeiðið fyrr á árinu, b) halda samskonar námskeið og þá fyrir nýjan hóp kvenna og svo c) að koma á fót frumkvöðlasetri í Karatu bæ, skammt frá Bashay þorpi í norður Tansaníu.

Til þess að tryggja framkvæmd næsta fasa þarf hins vegar aukinn stuðning og því verður á kynningarfundinum á þriðjudaginn hleypt af stokkunum söfnun á Karolina Fund.

Rannsóknir sýna ótvírætt að besta leiðin til að draga úr vannæringu barna er að mennta mæður þeirra. Fjölskyldan öll nýtur góðs af atvinnusköpun kvenna, bætir hag heimilisins, veitir aðgang að heilbrigðisþjónustu og umfram allt stuðlar að menntun barna sem er lykillinn að árangri til framtíðar.

Háskólinn á Bifröst telur sig ekki aðeins bera samfélagslega ábyrgð í heimabyggð heldur einnig í heimsbyggð og er því styrktaraðili að verkefninu auk Tanzanice Farm, tansanísks fyrirtækis í eigu Önnu Elísabetar í Bashay. Við vonumst til þess að fleiri styrktaraðilar bætist í hópinn á næstunni þegar söfnuninni á Karolina Fund verður hleypt af stokkunum. 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta