Gátlisti vegna þrifa

Gátlisti vegna þrifa á herbergjum og íbúðum nemendagarða

Þrífa skal:

  • Skápa innan og utan ásamt skápahurðum, uppi á skápum.
  • Skúffur innan og utan.
  • Bletti á veggjum og gólflista (ath. sérstaklega bakvið og undir skrifborð).
  • Gardínukappa og kringum glugga (ath. flugnaskít).
  • Glugga og gluggarúður.
  • Reykskynjara.
  • Ljósin (ath. dauðar flugur og flugnaskít).
  • Hurðir utan og innan (ath. hurðaföls).
  • Myndir á veggjum.
  • Ryksuga þar sem eru teppi.
  • Þvo klósett, vaska, spegla og sturtur/baðkör.
    (ath. kísilhreinsa vaska, sturtur og blöndunartæki).
  • Sturtuhengi (ath. má þvo í þvottavél á 60° hita).
  • Afþýða frystihólf/skápa eftir þörfum. Henda gömlum mat.
  • Þrífa ísskápa, henda gömlum mat og þrífa bakvið ísskápa.
  • Þrífa eldavél, ofn og viftu og á bakvið eldavélar.
  • Þvo hlífðardýnur af rúmum og setja á rúmin aftur.

Leigutökum ber skylda samkvæmt húsaleigusamningi að taka þátt í allsherjarhreingerningu við lóðir a.m.k. tvisvar á ári.

Sérstaklega til viðbótar í Bolla- og Vallakotum, Görðum, og Vist.

Samkvæmt húsaleigusamning eiga leigutakar að hreingera vel allt sameiginlegt rými reglulega og geta leigutakar farið fram á sameiginlega stórhreingerningu a.m.k. tvisvar á ári eða oftar ef einn eða fleiri flytja úr húsnæðinu. Þetta á einnig við um lóð. (Minnt er sérstaklega á geymslur, uppi á eldhússkápum, ísskápa, frystiskápa, eldavélar, ofna, viftur og einnig sígarettustubba og rusl í og við sameignir).