Vörumerkjastjórnun
Af hverju hafa sum vörumerki trygga áhangendur? Af hverju gleymast sum vörumerki fljótt? Hvernig hefur vörumerkjastjórnun áhrif á neytendahegðun? Hvernig sköpum við sterkt vörumerki? Hvernig mælum við virði vörumerkja? Hvernig ættu fyrirtæki að stjórna vörumerki yfir landamæri? Hvernig geta fyrirtæki nýtt sér samfélagsmiðla í vörumerkjastjórnun?
Þetta námskeið er hannað til að kanna hugtök og stjórntæki sem hjálpa nemendum að takast á við þessar spurningar og svara þeim á góðan hátt. Vörumerkjastjórnun er bæði list og vísindi en það eru til ákveðnar leiðir sem hægt er að fylgja til að auka líkurnar á að árangur náist. Með því að þekkja viðeigandi kenningar og líkön vörumerkjastjórnunar þá öðlast stjórnendur færni til að taka réttar ákvarðanir. Í heimi örra tækniframfara og breytinga á samfélagsgerð þá hafa með tilkomu gangvirkra tækja og tóla skapast bæði fleiri tækifæri og áskoranir í vörumerkjastjórnun.
Þetta námskeið hefur það markmið að fá nemendur til að skilja mikilvægi vörumerkjavirðis, ásamt hvernig á að byggja upp, mæla og stjórna vörumerkjavirði. Það mun fjalla um virkni vörumerkis, ferli til að byggja upp vörumerki, aðferðir til að mæla virði og leiðir til að nýta sér virði vörumerkis, aðferðir til að stjórna safni af vörumerkjum ásamt stjórnun vörumerkis yfir tíma, landamæri og milli markaðshluta. Vegna mikilvægis stafrænnar markaðssetningar og samfélagsmiðla í vörumerkjastjórnun verður fjallað um hugtök og aðferðir sem varða það í gegnum allt námskeiðið.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér hugtök og stjórntæki sem hjálpa nemendum að takast á við stjórnun vörumerkja og skilja mikilvægi þeirra.
Þátttökugjald er 100.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu. Kennsla hefst 19. október og er til 8. desember. Um fjögurra stunda vinnustofa verður á tímabilinu 13. - 15. nóvember, en nánari tímasetning og staðsetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 30. nóvember - 8. desember.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Brynjar Þór Þorsteinsson.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 19. október 2026.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.
