Straumlínustjórnun
Markmið námskeiðsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi að kynna fyrir þátttakendum helstu kenningar og aðferðir sem þróaðar hafa verið á sviði straumlínustjórnunar. Hins vegar að þeir öðlist góðan skilning á verkfærakistu straumlínustjórnunar eins og, 5S, VSM, PDSA og A3 sem og hvað þurfi að vera til staðar til að innleiðingu straumlínustjórnunar (LEAN) verði árangursrík og nái fótfestu.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna, þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, virkni og þátttöku þátttakenda.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja læra aðferðir straumlínustjórnunar
Þátttökugjald er 100.000kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu. Kennsla hefst 24. ágúst og stendur til 10. október 2026. Um fjögurra stunda staðlota í verður á tímabilinu 17.-20. september en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 10. október 2026.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Sigurður Blöndal
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2026.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.
