Stjórnmálasálfræði
Námskeiðið er inngangur að stjórnmálasálfræði, fræðigrein sem notar aðferðafræði sálfræðinnar til að rannsaka stjórnmálaskoðanir og viðhorf fólks. Fjallað verður um helstu kenningar í stjórnmálasálfræði og lögð áhersla á að nemendur geti nýtt rannsóknir til að greina atburði líðandi stundar. Meðal viðfangsefna verður sálfræði samsæriskenninga og leitast við að svara spurningum um af hverju fólk dregst að þeim og hvaða afleiðingar þær hafa fyrir einstaklinga og samfélag. Einnig verður fjallað um þjóðernishyggju og sameiginlegan narsissismi (e. collective narcissism) og áhrif þeirra á fordóma og samskipti. Þá verður fjallað um sálfræði hugmyndafræði, kynjahyggju og kvenhaturs, öfga, hryðjuverk og svo framvegis.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja geta beitt aðferðum sálfræðinnar til þess að fjalla um stjórnmálaskoðanir og -hugmyndafræði, og greina atburði sem verða í samfélaginu.
Þátttökugjald er 164.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu í Borgarnesi. Kennsla hefst 1. mars 2024 og stendur til 19. apríl 2024. Um fjögurra stunda vinnustofa verður á tímabilinu 14.-17. mars í Borgarnesi, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 15.-19. apríl.
Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2024.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.