Stafræn markaðsstjórnun

Stafræn markaðsstjórnun

Í námskeiðinu Stafræn markaðsstjórnun verður farið vel í einstaka þætti í hinum stafræna heimi þar sem hagnýting stafrænna tóla og tækja verður í forgrunni í stafrænni markaðssetningu. Farið verður yfir helstu áskoranir og tækifæri í stafrænni markaðssetningu með raundæmum og helstu aðferðir kynntar. Einnig verður lögð áhersla á nýjustu strauma og stefnur í stafrænni markaðsstjórnun. Kennarar í námskeiðinu verða sérfræðingar á sínu sviði og eru stöðugt að vinna með helstu aðferðir í stafrænni markaðsstjórnun.

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja efla færni sína í stafrænni markaðsstjórnun. 

Þátttökugjald er 149.000 kr

Gerð er krafa um að hafa lokið háskólanámi á grunnnámsstigi.

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur. Kennsla hefst 25. apríl 2023 og stendur til 31. maí 2023. Ein fjögurra stunda vinnustofa verða haldin á Bifröst helgina 6.-7. maí en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. 

Kennari

Kennari námskeiðsins er Brynjar Þór Þorsteinsson

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til 11. apríl.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.