Samningatækni

Samningatækni

Á námskeiðinu er fjallað á hagnýtan og aðgengilegan hátt um helstu aðferðir og kenningar
samningatækni sem notast er við í viðskiptalífinu. Kennsla byggir mikið á raunhæfum
verkefnum og dæmum um aðstæður sem geta skapast í samningaviðræðum aðila í viðskiptum.
Þá er fjallað á hagnýtan hátt um samningagerð og leiðir sem samningamenn geta farið til að
hámarka afkomu sína í samningum.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér aðferðir samningatækni.

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á framhaldsstigi

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu á Bifröst. Kennsla hefst 21. ágúst 2023 og stendur til 6. október 2023. Um fjögurra stunda vinnustofa á Bifröst verður á tímabilinu 14.-17. september, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 2.- 6. október.  

Kennari

Kennari námskeiðsins er Aldís Guðný Sigurðardóttir, stundakennari við Háskólann á Bifröst.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 24. ágúst.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.