Sakamálaréttarfar

Sakamálaréttarfar

Í námskeiðinu er fjallað um réttarreglur um meðferð sakamála, meginreglur sakamálaréttarfars, ákæruvaldið og saksókn, sakborning og verjanda, brotaþola og réttargæslumann, rannsókn og meðferð sakamála í héraði.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem hafa áhuga á sakamálaréttarfari.

Þátttökugjald er 100.000 kr

Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu. Kennsla hefst 24. ágúst og stendur til 10. október 2026. Um fjögurra stunda staðlota í verður á tímabilinu 17.-20. september en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 10. október 2026. 

Kennarar

Kennari námskeiðsins er Unnar Steinn Bjarndal, lektor við Háskólann á Bifröst.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2026. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.